Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 32

32
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Suðurskautslandið – Antarktíka
• Í kaflanum er fjallað um:
Landslag og náttúrufar
Dýralíf
Landakröfur ríkja
Stuttur suðurskautskaflinn fjallar aðallega um harðneskjulegt landslag og öfgar í nátturufari. Einnig er
fjallað um dýralíf og þá sérstaklega í hafinu allt í kringum Suðurskautslandið sem er einstaklega fjöl-
breytt allt frá neðsta þrepi fæðukeðjunnar, þörungum til stærstu skepna á jörðinni, hvala. Í lok kaflans
er sagt frá athafnasemi mannsins á Suðurskautslandinu og landakröfum ríkja.
Landslag bls. 150–151
Eins og gefur að skilja er allt landslag á suðurskautinu mótað af jöklum. Benda má nemendum á að leita
meiri upplýsinga um sérstök svæði á og við suðurskautið, t.d. Lambert-skriðjökulinn, Weddelhaf, Rosshaf
og íshellurnar sem liggja yfir höfunum, Ronne- og Rossíshelluna.
Náttúrufar bls. 152
Hér er aðal áherslan á veðuröfgarnar á Suðurskautslandinu, storm, þurrk og kulda. Benda má nemend-
um á fábreytt dýralíf á landinu sjálfu en fjölbreytt dýralíf í hafinu umhverfis.
Efri mynd á bls. 152: Eins og gefur að skilja vísa allir vegvísarnir í norður.
Landakröfur ríkja bls. 154
Benda á að skoða kortið vel á bls. 150. Lituðu strikin ná yfir landsvæði sem ríki gera kröfur um.
Kröfurnar fylgja lengdarbaugum. Á landsvæðinu sem gráa línan nær yfir gerir ekkert ríki tilkall.
Nemendur geta fundið þær rannsóknarstöðvar sem staðsettar eru á Suðurskautslandinu og skráð
hjá sér helstu upplýsingar varðandi þær.
Verkefni bls. 155
Um að gera að nota kortin í bókinni og
Kortabók handa grunnskólum
.
Í verkefni 6 er gott að hafa heimskort með breiddargráðum fyrir framan sig.
Í verkefni 22 er tilvalið að mæla vegarlengd í GoogleEarth.
Í verkefni 24 má nefna pólfarana, Ingþór Bjarnason, Ólaf Örn Haraldsson, Harald Örn Ólafsson og
Vilborgu Örnu Gissurardóttur.
• Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.
Suðurskautslandið
1...,22,23,24,25,26,27,28,29,30,31 33,34,35,36,37,38,39,40,41,42,...72
Powered by FlippingBook