Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 33

33
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Heimshöfin
Heimshöfin
• Í kaflanum er fjallað um:
Auðlindanýtingu í hafinu
Eignar- og umráðarétt yfir hafinu
Stjórnun fiskveiða
Siglingar um heimshöfin
Mögulegar siglingaleiðir um norðurheimskautið
Sjórán
Í kaflanum um heimshöfin er fyrst fjallað um hver eigi hafið og eru hugtökunum landhelgi, efnahags-
lögsaga og fiskveiðilögsaga gerð skil. Fjallað er um auðlindir hafsins og stjórnun fiskveiða. Að lokum er
fjallað um siglingar um heimshöfin, allt frá tímum Kristófers Kólumbusar til hugleiðinga í dag um mögu-
legar siglingaleiðir um norðurheimskautið.
Auðlindanýting í hafinu bls. 156–159
Hér má benda nemendum á hversu vandasamt verk það er að hafa stjórn á auðlindanýtingu í hafinu.
Hverju ríki er ætlað að stjórna nýtingunni innan sinnar efnahagslögsögu. Íslenska fiskveiðistjórnunarkerf-
ið þykir á heimsvísu mjög gott fiskveiðistjórnunarkerfi, sbr. rammagrein um Stjórnun fiskveiða bls. 159.
Hér má leggja áherslu á kvótaumræðuna á Íslandi, hvernig kvótanum var og er skipt, og hvernig málin
hafa þróast. Þessi umræða er tekin í verkefni 18 en ágætt er að taka þetta fyrir sérstaklega ef verkefninu
er sleppt.
Benda má á að skoða kortið á bls. 157 vel sem sýnir hvaða hafsvæðum löndin í Norður-Evrópu ráða yfir.
Ýmsar áhugaverðar spurningar og umræður gætu sprottið fram.
Siglingar um heimshöfin bls. 160–161
Mikið hefur verið ritað um siglingar um heimshöfin fyrr og síðar. Benda má nemendum á að leita sér
frjálslestrarefnis á bókasafninu sem hægt er að vinna með íslenskunni.
Benda má nemendum á að fylgjast vel með umræðum og umfjöllun í fjölmiðlum um mögulegar sigl-
ingaleiðir um norðurheimskautið.
Margir nemendur kunna eflaust að undrast sjóræningja nú á tímum. Þeir eru engu að síður til og láta
oft til sín taka. Nú er ein hættulegasta siglingaleið um heimshöfin undan ströndum Sómalíu. Benda má
nemendum á að fylgjast með fréttum varðandi nútíma sjórán.
Verkefni bls. 162
Um að gera að nota kortin í bókinni og
Kortabók handa grunnskólum
.
• Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.
Ferðalagið á enda bls. 163
Hér er upplagt að taka saman helstu punkta úr bókinni með nemendum og jafnvel fylgja eftir með
lokaverkefninu hér á eftir.
1...,23,24,25,26,27,28,29,30,31,32 34,35,36,37,38,39,40,41,42,43,...72
Powered by FlippingBook