Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 14

14
Maður og náttúra
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Gróðurfar og landnýting bls. 9–10
Að kunna skil á gróðurfari og því hvernig landið er nýtt hjálpar nemendum enn frekar að skilja hina ólíku
lifnaðarhætti jarðarbúa. Það gæti verið gott ráð að láta nemendur teikna skiptingu gróðurfars í heimin-
um til að auka skilninginn. Þá er ekki úr vegi að láta fleiri upplýsingar fylgja með eins og loftslagsbeltin.
Verkefni bls. 11
Mælt er með að kennarar velji verkefni til að vinna ef tími er af skornum skammti. Af nógu er að taka og
fjölbreyttu. Æskilegt er að kennari stýri umræðum í
Umræðu-hlutanum
til að byrja með og reyni að ná
öllum nemendum í umræðuna. Í
Viðfangsefnis-hlutanum
er upplagt að skipta í hópa eða pör sem svo
kynna niðurstöður fyrir bekknum.
• Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.
Mannfjöldi bls. 12–16
Gott er að byrja á því að skoða saman stóra kortið og skýringarnar sem fylgja því á bls. 12. Fá nemendur
til að átta sig á hinu mikla staðbundna þéttbýli. Ástæður þéttbýlis eru m.a. aðgangur að vatni, hentugt
loftslag og frjósamur jarðvegur. Þess vegna er mjög þéttbýl svæði oft að finna á framburðarsléttum
stórfljóta.
Leggja má fyrir nemendur að finna mestu stórfljót jarðar og stærstu borgir við þær. Einnig má láta nem-
endur finna hvaða stórfljót er að finna á dekkstu svæðunum á kortinu á bls. 12.
Það má vekja athygli á Brandt-línunni og ræða hvað veldur þessari skiptingu. Einnig er gott að ræða
nánar og útskýra hugtökin,
fæðingartíðni, dánartíðni, náttúrulega fólksfjölgun
og
náttúrulega fólksfækkun,
brottflutning
og
aðflutning
. Þetta er útskýrt í lesbók en þarfnast í einhverjum tilfellum umræðu sem ætti
þá að leiða til nánari útskýringar.
Rammagreinin á bls. 77 um
HIV og áhrif sjúkdómsins á mannfjölda og fjölskyldur
gæti hentað ágætlega
með mannfjöldaumræðunni.
Nauðsynlegt er að útskýra myndræna framsetningu
mannfjöldapíramída.
Í myndatexta á bls. 15 í lesbók
er hann m.a. skýrður í grófum dráttum.
1...,4,5,6,7,8,9,10,11,12,13 15,16,17,18,19,20,21,22,23,24,...72
Powered by FlippingBook