Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 9

9
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Inngangur
• Bréfaskriftir:
Þetta verkefni hentar vel að vinna samhliða hitamálum sem nemendur þurfa að
mynda sér skoðun um. Eftir að hafa verið búin að kynna sér ákveðið málefni geta nemendur skrif-
að bréf til yfirvalda og lagt fram tillögur að breytingum t.d. varðandi mengun, landeyðingu, ofbeit,
ofveiði og annað sem varðar umhverfismál.
• Skrifa frétt:
Frétt skrifuð um ákveðna atburði bæði innlenda og erlenda. Mætti nefna frétt
t.d. af veiðiþjófnaði, útrýmingu dýra, stríð eða annað efni sem kveikir áhuga. Mætti t.d. byrja á
hugstormi þar sem nemendur eru beðnir um að finna hvað gæti hugsanlega verið fréttnæmt í
tengslum við þennan kafla. Hér væri einnig hægt að skipta þeim í hópa þannig að ólík sjónarmið
komi fram, t.d. frétt með hvalveiðum og frétt á móti hvalveiðum og bera saman röksemdafærsl-
una óháð þeirra persónlegu skoðunum.
• Viðfangsefni í fréttum:
Hvað er nýjast í fréttum frá t.d. heimsálfum? Nemendur kynna sér efni
frétta og kynna hver fyrir öðrum. Hægt væri að safna saman á vegg fyrirsögnum úr fréttablöðum
og flokka eftir heimsálfunum. Jafnvel hægt að vera með heimskort þar sem fyrirsagnir frétta eru
dregnar inn á kortið og þá er hægt að sjá hvaðan flestar fréttirnar koma. Nemendur eru hvattir
til að afla sér upplýsinga á netinu um það sem er að gerast í heimsálfunni þessa stundina, t.d.
náttúruhamfarir, stríðsátök, kosningar eða annað. Nemendur geta síðan kynnt fyrir hópnum þá
frétt sem þeir völdu. Hér er slóð sem hægt er að leita frétta.
europe.html
.
• Kortavinna:
Einföld kortavinna með kortum sem fylgja með aftast í kennsluleiðbeiningum.
Hugmyndir að kortaverkefnum eru í kennslubókinni sjálfri. Aðrar hugmyndir að kortavinnu eru:
Búa til heimskort og klippa út persónur og líma á kortið sem sýnir fjölda íbúa í hverri heims-
álfu.
Finna og merkja á kortið t.d. hæsta fjall í hverri heimsálfu, stærsta vatn, lengstu á, hæsta foss
o.s.frv.
Kennari ljósritar stórt kort af heimsálfunni og klippir út löndin (eða lætur nemendur gera það),
hver nemandi fær eitt land eða landsvæði og þeir eiga svo að raða löndunum saman og setja
saman heimsálfukort þeirrar heimsálfu sem unnið er með.
Nemendur koma með kort að heiman frá útlöndum og skoða saman.
Heimskortagerð – sjá leiðbeiningar aftar í kennsluleiðbeiningum.
• Hugtakakort:
Kenna þeim að nota það í allri vinnu.
Hugtakakort geta verið t.d. um hungur, fátækt,
mannréttindi, trúarbrögð, tungumál, þrælaverslun,
samgöngur, landslag og náttúrufar mismunandi
landa, auðlindanýtingu o.fl. Upplagt er að láta nem-
endur gera eitt hugtakakort áður en þeir lesa bókina
og svo annað eftir að þeir hafa lesið hana. Bera svo
saman hugtakakortin til að sjá hvað þeir hafi lært.
Gott er að googla orðið hugtakakort til að fá hug-
myndir að því hvernig hugtakakortagerð fer fram.
• Heilsíðumynd af hugtakakortinu er á bls. 38 í
kennsluleiðbeiningunum. Einnig er hægt að ljósrita
autt hugtakakort á bls. 39 sem nemendur geta fyllt
inn í sjálf í öðrum verkefnum og bætt þá jafnvel við
hringjum eftir því sem pláss leyfir. Einfaldast er samt
að kenna nemendum að gera sitt eigið hugtakakort
frá grunni þar sem þau teikna sjálf sína hringi og
skrifa inn í þá skýringar.
Viktoríuvatn
Vötn
Fjöll
Kenýafjall
Kilimanjaro
Sigdalurinn
Eldvirkni
Atvinnuhættir
Sjálfsþurftar-
búskapur
Kvikfjárrækt
Hráefnavinnsla
Landbúnaðarafurðir
til útflutnings
Hirðingja-
búskapur
Saga
Hæg efnahags-
uppbygging
Aðskilnaðarstefna
Suður-Afríka
Þrælaverslun
Nýlendustefna
Evrópuþjóðir
Kaffi
Olía
Te
Gull
Demantar
Tanganikavatn
Landslag
Náttúrufar
Náttúru-
auðlindir
Gróðurfar
Eyðimörk
Regnskógar
Savanni
Kalahari
Kakó
Sahara
Jarðhnetur
Loftslag
Eyðimerkur-
loftslag
Hitabeltis-
loftslag
Fljót
Níl
Kongófljót
Jarðhiti
Afríka
1,2,3,4,5,6,7,8 10,11,12,13,14,15,16,17,18,19,...72
Powered by FlippingBook