Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 10

10
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Inngangur
• Rökræður:
Kennari kemur með myndir, staðreyndir, fréttir eða annað frá tveimur ólíkum löndum
og lætur nemendur skoða hvað er sameiginlegt með þessum tveimur löndum. Ræða saman og
rökstyðja.
• Keðjuspurningar/Domino:
Kennari (eða nemendur) búa til spjöld og á hverju spjaldi er svar við
spurningu á öðru spjaldi. Spjöldin eru sett á hvolf og hver nemandi dregur eitt spjald, spyr spurn-
inga og sá nemandi sem er með rétt svar les svarið og þá spurningu sem er á spjaldinu hans og
þannig koll af kolli.
• App:
Til er fjöldi smáforrita til að prófa þekkingu (quiz) og skemmtilegir leikir um lönd í heimin-
um. Hér eru nokkur dæmi, TapQuiz Maps, World Flags, Geomaster, World Atlas, Fotopedia
Heritage, 1001 Wonder of the World, Easy Globe, Geogame, Globe o.fl. Um að gera að leita að
fleiri smáforitum því stöðugt bætast ný við.
• Myndbönd:
Sem kveikju væri tilvalið að horfa saman á fræðslumyndir til að kynnast landi og
þjóð. Til er nokkuð mikið af fræðslumyndum á vef Námsgagnastofnunar. Með sumum þeirra
fylgja kennsluleiðbeiningar. Einnig er hægt að finna stutta fræðsluþætti á Youtube sem tengjast
efni bókarinnar. Þær fræðslumyndir sem Námsgagnastofnun býður upp á eru:
Ríki heimsins – Afríka sunnan Sahara
Ríki heimsins – Amason, glötuð paradís
Ríki heimsins – Brasilía, nýtt heimsveldi
Ríki heimsins – Indland, risinn í austri
Ríki heimsins – Kína, efnahagslegt heimsveldi
Ríki heimsins – Suður-Asía, fólk og staðir
Ríki heimsins – Suður-Ameríka, fólk og staðir
Ríki heimsins – Japan á 21. öldinni
Austur – Grænland, á ísnum
Austur – Grænland, fólk á ferð
Ein jörð – Eystrasaltslönd
Ein jörð – Indland
Ein jörð – Tyrkland
Ein jörð – Taíland
Samþætting við aðrar námsgreinar
Verkefni um heimsálfurnar má tengja við margar námsgreinar. Hér má sjá nokkur dæmi.
List- og verkgreinar
Búa til stórt heimskort á MDF-plötu, teikna/mála heimsálfur og láta nemendur saga út lönd og setja á
réttan stað á kortinu. Hægt að mála plötuna með segulmálningu (undir myndina af heimsálfunum) og
setja segul aftan á löndin. Þá er hægt að færa löndin og nota kortið aftur og aftur. Hægt er að kynna sér
listasögu ólíkra svæða í heiminum og vinna verkefni tengd þeim.
1,2,3,4,5,6,7,8,9 11,12,13,14,15,16,17,18,19,20,...72
Powered by FlippingBook