Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 11

11
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Inngangur
Heimilisfræði
Nemendur geta spreytt sig á að útbúa hina ýmsu þjóðarrétti. Það ætti að vera auðvelt að finna
uppskriftir að hinum og þessum þjóðarréttum á netinu.
Íslenska
Nemendur lesi heimsbókmenntir og kynni fyrir bekknum. Einnig er upplagt að láta nemendur gera
ritgerðir. Viðfangsefnin eru ærin. Allt frá kynningu á löndum til álitamála í samfélaginu.
Náttúrufræði
Náttúrufræði og landafræði eru nátengdar greinar. Öll jarðfræði flokkast t.d. undir báðar þessar greinar.
Skoða má t.d. jarðfræðivefinn hjá Námsgagnastofnun:
/
Saga
Saga og landafræði eru samofin og ætti ekki að vera erfitt að tvinna þessi tvö fög saman. Þegar pólitísk
landafræði er skoðuð má t.d. gera tímaás og er hægt að styðjast við rammagreinarnar í bókinni sem eru
langflestar af sagnfræðilegum toga.
Upplagt er að hvetja nemendur til að kynna sér mannkynssöguna eða sögu ólíkra heimshluta með lestri
bóka af bókasafni.
Stærðfræði
Mikið af tölfræðiupplýsingum liggur fyrir á netinu um ólík viðfangsefni landa sem upplagt er að vinna
með, t.d. vegalengdir milli staða, íbúaþéttleika landa og upplýsingar er snúa að þúsaldarmarkmiðum.
Tónmennt
Það er m.a. hægt að hlusta á tónlist frá ólíkum heimshlutum og velta fyrir sér stefnum og straumum og
sögu tónlistarinnar. Tónelskir nemendur geta samið framandi lög og flutt fyrir bekkinn.
Landafræði tónlistarinnar
er vefur hjá Námsgagnastofnun um framandi tónlist og menningu ýmissa
landa:
Upplýsingamennt
Á vef Námsgagnastofnunar er að finna vef með GoogleEarth verkefnum sem kallast Heimsreisa. Hægt er
að vinna allskonar kynningar um stór og lítil málefni í Powerpoint og útbúa bæklinga með t.d. Publisher.
Slóðin á Heimsreisuvefinn er:
• Kynning á einu landi í heimsálfunni.
• Kynning á heimsálfunni í heild eða einstökum hlutum hennar.
• Útbúa ferðamannabækling.
• Súlurit. Umræður um lönd sem nemendur hafa heimsótt eða langar til að heimsækja,
búa til súlurit og skoða hvaða lönd eru vinsælust meðal nemenda.
1...,2,3,4,5,6,7,8,9,10 12,13,14,15,16,17,18,19,20,21,...72
Powered by FlippingBook