Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 6

6
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Inngangur
Í aðalnámskrá grunnskóla – almenna hlutanum eru sett fram viðmið um mat á lykilhæfni í grunnskóla.
• Hæfni nemenda til að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir munnlega, skriflega og á annan
hátt.
• Hæfni til að miðla þekkingu og leikni sinni og flytja mál sitt skýrt og áheyrilega og taka þátt í
samræðum og rökræðum.
• Skapandi hugsun og frumkvæði í efnistökum og úrvinnslu. Hæfni nemenda til að nota
þekkingu og leikni, draga ályktanir, áræðni til að leita nýrra lausna og beita gagnrýninni
hugsun og röksemdafærslu.
• Hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt, í samstarfi við aðra og undir leiðsögn.
• Hæfni nemenda til að nýta margvíslega miðla í þekkingarleit, úrvinnslu og miðlun og
nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt.
• Hæfni nemenda til að bera ábyrgð á eigin námi og leggja mat á eigin vinnubrögð og
frammistöðu.
Greinanámskrá í samfélagsgreinum
Í aðalnámskrá grunnskóla – samfélagsgreinum eru meðal annars sett fram þessi viðmið sem snúa að
landafræði um mat á lykilhæfni í grunnskóla. Nemendur eiga að geta:
• Ígrundað víxlverkun samfélags, stjórnmála, náttúru, trúar og lífsviðhorfa í tímans rás og
í samhengi nærsamfélags og hnattvæðingar.
• Sýnt fram á skilning á eðli sjálfbærrar þróunar og þýðingu hennar fyrir umhverfi, samfélag
og efnahagslíf.
• Aflað sér, hagnýtt, ígrundað og metið upplýsingar um menningar- og samfélagsmálefni sem
birtast í munnlegum flutningi, samræðum, texta og myndrænum búningi.
• Fjallað á upplýstan hátt um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu og sögu landsins
og breytilegrar menningar, trúar, lífsviðhorfa og stjórnarfars.
• Fjallað um náttúruferla sem mynda og móta land og hafa áhrif á loftslag og gróður.
• Útskýrt megineinkenni gróðurfars, loftslags, vinda og hafstrauma jarðar og hvernig þessir þættir
móta ólík lífsskilyrði.
• Greint mynstur mannlegra athafna sem móta og breyta umhverfi og búsetuskilyrðum.
• Gert sér grein fyrir nýtingu auðlinda og umhverfis og gildi verndunar hvors tveggja með hliðsjón
af sjálfbærri þróun.
• Greint og fjallað um upplýsingar á kortum og gröfum og annars konar myndum.
• Rökrætt mikilvæg hugtök sem notuð eru um menningar- og samfélagsmálefni.
Aðalnámskrá grunnskóla
1,2,3,4,5 7,8,9,10,11,12,13,14,15,16,...72
Powered by FlippingBook