Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 36

36
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Heimskortagerð
Notaður er myndvarpi og heimskorti varpað á stórt veggspjald.
Þegar nemendur hafa lokið við að teikna heimskortið á veggspjaldið fá þeir í hendur lista yfir ákveðið
þema, eins og t.d:
• Þjóðartekjur
• Lífslíkur
• Farsímaeign
• Internetaðgangur
• Fólksfjölda
• Fólksfjölgun
• Læsi
• Útbreiðslu alnæmis
• Ríkjandi trú
• Algengustu tungumál
• o.fl.
Heimild:
/
Vinnan
• Teiknað eftir myndvarpa
• Reiknað
• Lönd lituð
• Titill og skýringar
• Hópar kynna niðurstöður
Þemanu er skipt í 3 flokka. Síðan er hvert land litað eftir því í hvaða flokk það féll. Gott getur verið ef allir
hóparnir nota sömu liti, t.d. gulan, appelsínugulan og rauðan. Endanlegt útlit kortsins verður skemmti-
legra, auk þess verður auðveldara að átta sig á því mynstri sem út kemur.
Niðurstaða
• Athuga hvort nemendur finni skýringar á mynstri sem kann að myndast samanborið
við önnur þemu.
• Jafnvel að hvert og eitt eða 2–3 manna hópar velji land/heimshluta/allan heiminn til
að fjalla um og segi bekknum frá.
Heimskortagerð – ríkjaskipan Vinnublað
1...,26,27,28,29,30,31,32,33,34,35 37,38,39,40,41,42,43,44,45,46,...72
Powered by FlippingBook