Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 4

4
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Inngangur
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla frá 2012 er:
Hlutverk samfélagsgreinakennara að gefa nemendum tækifæri til að þroska hæfni sína til að eiga
í innihaldsríkum samskiptum við aðra, veita þeim leiðsögn í lýðræðislegum vinnubrögðum og ljá
þeim verkfæri til þess að þróa skilning sinn á sjálfum sér, öðru fólki og því umhverfi og samfélagi
sem þeir hrærast í. Kennarinn á að hjálpa nemendum að skilja hugmyndir og hugsjónir sem liggja til
grundvallar viðhorfum til umhverfis, auðlinda og sögu og gera þeim kleift að átta sig á samfélagsleg-
um og siðferðilegum álitamálum. Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til að byggja upp orðaforða
sinn, þjálfist í notkun hans og að beita honum við ólíkar aðstæður.
Þær kennsluaðferðir sem stuðla að aukinni hæfni í samfélagsgreinum eru meðal annars:
• Umræðu- og spurnaraðferðir
sem þjálfa samræðu og gagnrýna hugsun. Efling gagnrýninnar
hugsunar á sér stað í samræðu en hún er vettvangur þar sem nemendum gefst tækifæri til að
fjalla um, hugleiða og ræða sín á milli, og við kennarann, um ákveðna þætti námsefnisins á mark-
vissan, krefjandi og skapandi hátt. Það hentar vel að nemendur ræði saman í litlum hópum eða
pörum til að allir verði virkir í umræðunni og síðan ræðir bekkurinn saman í heild og ber saman
niðurstöðurnar.
• Hóp- og paravinna
getur alið af sér samkennd, samræður, tjáningu og dýpri skilning ásamt því
að auka skilning á viðhorfum og skoðunum annarra og styrkir sjálfsmynd og eykur sjálfstraust
nemenda. Markmiðið getur til dæmis verið að vekja nemendur til umhugsunar, fá þá til
að skiptast á skoðunum eða rökræða, velta fyrir sér mismunandi hliðum tiltekins máls, kenna
þeim að tjá sig og taka tillit til annarra. Mælst er til að nemendur fái ávallt tækifæri til að ræða
um efnið sem unnið er með og að þeir vinni sem mest saman í litlum hópum eða pörum að
lausn verkefna. Til eru ýmsar útfærslur af hópvinnu og má þar nefna
söguaðferðina, þemanám
og landnámsaðferðina
.
• Leitaraðferðir
henta vel til að kynna nemendum vísindaleg vinnubrögð og veita þeim þjálfun
í að afla upplýsinga og vinna úr þeim með skipulögðum hætti. Dæmi um slíkar aðferðir eru
heimildavinna, vettvangsferðir og viðtöl. Vinna með heimildir er því stór hluti af kennslu
samfélagsgreina og leggja þarf áherslu á upplýsingalæsi nemenda. Upplýsingalæsi er skilgreint
þannig að einstaklingurinn geti fundið, staðsett, metið, skipulagt og notað upplýsingar á
skilvirkan hátt við að fjalla um þau málefni og viðfangsefni sem fyrir liggja hverju sinni.
• Leikræn tjáning og hlutverkaleikir
eru einnig kennsluaðferðir sem æfa nemendur í að setja
sig í spor annarra og takast á við ímyndaðar aðstæður, samfélagsleg málefni og álitamál.
Kennsluhættir
1,2,3 5,6,7,8,9,10,11,12,13,14,...72
Powered by FlippingBook