Grunnþættir menntunar
41
Menntun til
sjálfbærni
Umhverfismennt
Menntun til sjálfbærni á rætur sínar í umhverfismennt sem víða hefur verið
stunduð á formlegan hátt í áratugi en þar áður um aldir verið hluti af uppeldi
fólks og námi. Markmið umhverfismenntar er að fólk öðlist umhverfisvitund,
skynji hvaða hegðun er við hæfi í náttúru og samfélagi, sé hófstillt og sýni bæði
fólki og umhverfi tillitsemi, virðingu og kurteisi.
28
– Þitt er menntað afl og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd,
hjartað sanna og góða.
Stephan G. Stephansson
27
3
Auður djúpúðga í nútímanum
Auður djúpúðga Ketilsdóttir var höfðingjadóttir. Hún var gift Ólafi hvíta Írlandskonungi
og sonur þeirra, Þorsteinn, var konungur Skota um tíma. Þeir féllu báðir í orrustum.
Auður bjó þá í Suðureyjum og ákvað að gerast landnámskona á Íslandi. Þangað fór hún
með fjölmenni og nam mikið land á Vesturlandi. Varla er ofmælt sem sagt er í Laxdælu
að Auður hafi verið mikið afbragð annarra kvenna. Viðurnefni hennar þýðir líka að hún
hafi verið djúpvitur. Hún hefur sannarlega kunnað að haga sér með höfðingjum og verið
flink í samskiptum við fólk og samfélag.
Ef hægt væri að kippa Auði inn í nútímaþjóðfélag er næsta víst að það yrði henni
ákaflega framandi. Gáfur hennar og skörungsskapur nýttust henni lítt og hún vissi varla
hvað væri við hæfi um klæðnað og snyrtingu né þekkti hún daglega siði og venjur
svo sem borðsiði. Hún yrði jafnvel óttaslegin við alla „galdrana“ í kring um sig eins og
rafmagn og síma.
Nútímamaðurinn er í raun að verða eins þegar náttúran er annars vegar. Kann ekki að
haga sér, skynjar ekki og veit því ekki hvaða hegðun er við hæfi og gengur þvert á þær
umgengnisreglur sem náttúran hefur sett á sinni löngu ævi. Óvíst er hve lengi hægt er
að komast upp með það.
1...,33,34,35,36,37,38,39,40,41,42 44,45,46,47,48,49,50,51,52,53,...68