SJÁLFBÆRNI
36
safnast upp í náttúrunni, í líkömum okkar og annarra lífvera. Við gerum lífríkið
sífellt fábreyttara svo að lífkerfið, net lífvera og náttúru, gliðnar og trosnar.
22
Allar lífverur skipta máli í vistkerfinu, vistkerfisins vegna og annarra lífvera.
Út frá sjónarhóli mannsins skiptir líka hver tegund máli, í hverri þeirra búa
möguleikar til fæðu og lyfja. Fólk sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir einni tegund
matvöru verður að fá aðra sambærilega. Til að hægt sé að rækta sem fjölbreyttasta
matvöru og framleiða sem fjölbreyttust lyf verður margbreytileikinn að vera fyrir
hendi í lífríkinu.
Köfnunartilfinning er andstyggileg og viðbrögð manns við henni eru
snögg og kröftug og sem betur fer oftast árangursrík. Þorsti og hungur minna
okkur líka á að við höfum „aftengst“
hringrásum Jarðar og þurfum að bæta
þar úr með aðgerðum. Lengi hafa
hugsuðir haldið því fram að fólk hafi
ekki aðeins þörf fyrir efnisleg tengsl
við náttúruna í formi lofts, vatns og
matar til að halda heilsu heldur haldi
fólk ekki andlegu heilbrigði nema
það sé í tengslum við náttúruna með
samskiptum, einhvers konar upplifun
og helst útiveru. Á síðustu árum hafa
líka komið fram kenningar um að ýmsa
Kanarífuglinn í kolanámunni
Kanarífuglar eru viðkvæmari fyrir loftmengun en fólk. Sagan segir að kolanámumenn
hafi tekið með sér kanarífugl í búri niður í djúpar námur. Þegar kanarífuglinn dó flýttu
mennirnir sér upp á yfirborðið því að þeir vissu að annars færu þeir sömu leið og fuglinn.
Bent hefur verið á að allt í kring um mannkyn Jarðar séu „deyjandi kanarífuglar“. Stofnar
fjölmargra lífverutegunda minnka nú mjög hratt eða eru jafnvel alveg að hverfa og menn
verði að grípa til snöggra og raunhæfra aðgerða ef ekki á illa að fara.
Fjallgöngur
... ég reyni að komast til fjalla, helzt ekki
sjaldnar en vikulega, og þá alltaf í nokkurn
bratta, þannig að ég reyni á líkamsþolið.
Oftast er ég einn á þessum ferðum, og
ég trúi því, að ég haldi ekki andlegri eða
líkamlegri heilsu, hvorki siðferðilegri né
vitsmunalegri, – nema að ég stundi mínar
fjallgöngur.
Broddi Jóhannesson, rektor KÍ og KHÍ
23
1...,28,29,30,31,32,33,34,35,36,37 39,40,41,42,43,44,45,46,47,48,...68