SJÁLFBÆRNI
        
        
          30
        
        
          ekki lán þá borgi þeir ekki vexti. Kennedy bendir á að svo sé ekki því að vextir
        
        
          séu innifaldir í öllu. Þjónustufyrirtæki tekur lán á vöxtum fyrir stofnkostnaði sínum
        
        
          og getur ekki annað en látið fjármagnskostnað og vaxtagreiðslur út í verðlagið og
        
        
          rukkar því sífellt hærra verð fyrir þjónustu sína. Allur almenningur, hvort sem hann
        
        
          skuldar eitthvað eða ekki, er því að borga vexti um leið og hann kaupir þjónustu
        
        
          svo sem sorphirðu, tannlækningar og húsaleigu. Þeir sem eiga peninga í banka eða
        
        
          í hlutabréfum fá svo einhverja vexti sjálfir upp í vaxtakostnað sinn. Fólk gæti því
        
        
          haldið að jafnt sé með öllum komið en svo er ekki. Kennedy bendir á að fjarri lagi
        
        
          sé að peningakerfið meðhöndli alla á sama hátt. Meiri hluti fólks, eða um 80%,
        
        
          
            Þeir sem gagnrýna hagvaxtarhyggjuna benda oft á atriði sem þessi:
          
        
        
          
            Minni hagvöxtur er þegar ...
          
        
        
          
            Meiri hagvöxtur er þegar ...
          
        
        
          Móðir gefur barni brjóst og faðir þvær
        
        
          margnota bleyjur.
        
        
          Barn fær mjólkurduft úr pela og foreldrar
        
        
          kaupa einnota bleyjur.
        
        
          Fólk heldur húsum sínum vel við.
        
        
          Hús eru látin drabbast niður og síðan ný
        
        
          byggð.
        
        
          Fólk ferðast gangandi, á reiðhjólum eða
        
        
          ekur varlega.
        
        
          Fólk ekur hratt, klessukeyrir bíla og
        
        
          veldur slysum.
        
        
          Framleidd er vönduð vara og gert við
        
        
          hluti sem bila.
        
        
          Framleidd er léleg vara sem verður fljótt
        
        
          ónýt og er þá hent og nýir hlutir keyptir.
        
        
          Fólk eldar sjálft matinn sinn.
        
        
          Keyptur er tilbúinn matur í álbökkum og
        
        
          frauðplasti.
        
        
          Verðmætasköpun heimila eykur ekki
        
        
          hagvöxt. Fólk sem vinnur við að gera
        
        
          heimili sitt og fjölskyldu sinnar vistlegt,
        
        
          annast um börn og aldraða, viðheldur
        
        
          menningu, tungumáli, hefðum og
        
        
          siðum, ræktar eigið bú og garð, sinnir
        
        
          framleiðslu sem er borðuð, skitin út eða
        
        
          slitin út jafnóðum og hún er framleidd,
        
        
          það eykur ekki hagvöxt með sinni vinnu.
        
        
          Óveður og jarðskjálftar auka hagvöxt.
        
        
          Í kjölfar þeirra eykst sala t.d. á
        
        
          byggingarefni og mikil vinna er við
        
        
          enduruppbyggingu og lagfæringar. Stríð,
        
        
          með öllum sínum hörmungum, auka
        
        
          mjög hagvöxt. Umbúðir um vörur auka
        
        
          hagvöxt. Atvinna skapast við að hanna
        
        
          þær og framleiða, sala vörunnar eykst
        
        
          og verð hækkar. Umbúðir auka mjög
        
        
          sorp og vinnu við sorphirðu.