Grunnþættir menntunar
23
betra fyrir mannkyn að leggja áherslu á það sem við eigum sameiginlegt heldur en
það sem sundrar ættu allar þjóðir að geta sameinast um að virða leikreglur Jarðar
til góða fyrir allt mannkyn og komandi kynslóðir.
Oft er mikilvægt að kunna að „lesa á milli línanna“, lesa það sem í raun ekki
sést. Ef við sjáum fótspor í sandi vitum við að þar hefur gengið maður þótt við
sjáum engan mann. Ef þar er líka bílslóð vitum við hvað það merkir, slóð bílsins
er væntanlega mun dýpri og greinilegri en fótsporin. Líklega hverfa öll ummerki
í næsta roki og rigningu, alla vega fótsporin en kannski safnast vatn í slóðina og
hún dýpkar og verður enn greinilegri. Úr sporunum og slóðinni í sandinum má
því lesa ýmislegt sem ekki sést. Í raun má lesa miklu meira en það sem hér hefur
verið rakið því að sporin sem maðurinn og bíllinn skildu eftir sig eru enn meiri
og dýpri en þau sýnast.
Nánasta umhverfi okkar
Í Selásskóla í Reykjavík uppgötvaðist að þótt krakkar þekktu áttir á landakorti þá voru
þeir áttavilltir úti við. Ákveðið var að teikna áttastjörnu á skólalóðina, sjá slóð í samantekt
kennsluverkefna á bls. 58.
Nú er auðveldara en áður að vita úr hvaða átt vindurinn blæs. Sumir kennarar undirstrika
áttirnar með því að ganga frá stjörnunni í ákveðna átt að svo miklu leyti sem það er
hægt fyrir húsum og öðrum mannvirkjum. Hvað rekumst við á og sjáum þegar gengið er
í norður frá skólanum? Hvaða götur eru þar, byggingar, opin svæði og hvaða fjöll sjáum
við í þá átt á sjóndeildarhring? En ef farið er í austur, suður eða vestur? Farið í ýmiss
konar veðri og á ólíkum árstíðum. Setið á góðum stað og upplifað, hlustað, þreifað,
þefað. Skoðuð form og fyrirbæri, grjót og steinar, tré og aðrar plöntur, nöfn á götum
og örnefni.
Til eru loftmyndir af skólahverfinu frá ólíkum tímum sem sýna hvernig hverfið byggðist
upp. Hvað breyttist þegar byggðin lagði landið undir sig? Hvernig var land og náttúra hér
áður og hverjir bjuggu hér? Til dæmis ýmsir fuglar. Hvert fóru þeir? Talað við fólk sem
búið hefur lengst í hverfinu.
Upplýsingum safnað og unnið úr þeim, myndir teknar og teikningar gerðar.
1...,15,16,17,18,19,20,21,22,23,24 26,27,28,29,30,31,32,33,34,35,...68