SJÁLFBÆRNI
56
Sólin sortnar,
sígur jörð í haf,
bjartar stjörnur
blikna á himni.
Eldur leikur
um askinn mikla,
háir logar hita
himin sjálfan.
45
Í áratugi hafa ríkustu þjóðir heims teflt fram færustu vísindamönnum og varið
miklum fjármunum í rannsóknir á himingeimnum. Markmið rannsóknanna eru
ekki síst þær að leita að lífi í óendanlegum víddum alheimsins. Þrátt fyrir mikla og
kostnaðarsama athugun í ýmsum kimum veraldar hefur þar þó ekki fundist arða
af lífi. Hvað þá að hafi fundist hnöttur sem iðaði að lífi eins og okkar lifandi Jörð.
Reyndar er Jörðin ekki okkar. Nær væri að segja að hún ætti okkur og allar þær
komandi kynslóðir manna og annarra lífvera sem á henni gætu lifað í framtíðinni
ef við lærðum að haga okkur skikkanlega.
Völuspá spáði ekki aðeins heimsendi heldur líka að ný jörð risi úr sæ. Látum
þá spá rætast.
Upp sá ég koma
öðru sinni
jörð úr ægi
iðjagræna.
Falla fossar,
flýgur örn yfir,
sá sem fiska
á fjalli veiðir.
Sal sá ég standa
sólu fegri,
gulli þakinn
á Gimli.
Þar skulu dyggar
þjóðir búa
og alla daga
yndis njóta.
1...,48,49,50,51,52,53,54,55,56,57 59,60,61,62,63,64,65,66,67,...68