1. Skoðaðu töfluna hér að
neðan og merktu x í þá reiti sem þú
heldur að sendandinn sé að höfða til ungra
eða eldri áhorfenda. Berðu niðurstöðurnar
síðan saman við niðurstöður bekkjarfélaga
þinna.
Sendandi boðskapar |
Ungir móttakendur |
Eldri móttakendur |
MTV |
|
|
Kastljós
|
|
|
Djúpa laugin
|
|
|
Maður er nefndur
|
|
|
NBA tilþrif
|
|
|
Jerry Springer |
|
|
Áramótaskaupið
|
|
|
2. Ímyndum okkur
að kosningar standi fyrir dyrum og stjórnmálaflokkar
láti útbúa kynningarbækling um helstu
markmið sín og stefnu. Að sjálfsögðu
myndu þeir reyna að sýna sig í eins hagstæðu
ljósi og hægt er. Og ég get lofað þér
að þeir munu ekki fjalla um aðra flokka á jafn
jákvæðan hátt og sinn eigin! Boðskapurinn,
innihaldið í bæklingnum mun einkennast af atriðum
sem geta orðið þess valdandi að kjósendur
kjósi einmitt þennan flokk en ekki einhvern annan.
Boðskapurinn tekur mið af móttakendum. Ef tilgangur
boðskapsins er að ná til ungra kjósenda mun
flokkurinn leggja áherslu á að fjalla um málefni
sem höfða til þess hóps. Málefnin gætu
snúist um lækkun tolla á geisladiskum, fjölgunar
skemmtistaða fyrir ungt fólk, aukið fé til
íþróttafélaga eða aðgerðir
gegn atvinnuleysi. Ef móttakendurnir væru gamalt fólk
myndi flokkurinn leggja áherslu á að fjalla um
öldrunarmál og ellilífeyrisaldur í bæklingum.
Hér eru hugmyndir um málefni sem
stjórnmálaflokkur gæti sett í áróðursbækling
til ólíkra mótttakenda. Ræðið
hugmyndirnar í bekknum, finnið rök fyrir af hverju
málefnin gætu höfðað til ólíkra
aldurshópa og reynið að finna fleiri atriði sem
hægt væri að bæta við:
UNGT FÓLK
|
ELDRA FÓLK
|
Lækkun bílprófsaldurs |
Hækkun bílprófsaldurs |
Fleiri félagsmiðstöðvar |
Fleiri elliheimili |
Ókeypis tölvur á
hvern nemenda |
Ókeypis lyf |
Lægri álögur
á tískuvörur |
Lægri fasteignaskatta |
Námslaun (kaup fyrir
að vera í skóla) |
Hærri ellilífeyrir |
|
|
|
|
|
|
|