5. KAFLI
81
Miðgarðsormur
Sjórinn rauður sýður.
Í
sortanum
hann bíður.
Dagrenning
og dauðastormur,
í djúpinu er Miðgarðsormur.
Gakktu út á gróinn
núp
,
gáðu hvað mun prýða undirdjúp.
Þarna yfir sjó og sand
sérðu áfram líða
Jörmungand
.
Mæli
ég því mikill er,
Miðgarðsormur þræðir lönd og sker.
Hann sem mig skal hitta vill
hörfa þegar blæðir,
kjarklítill
.
Renni ég færinu fyrsta sinni,
festi við
þóftu
í
kænu
minni.
Annað sinn kasta, hann ekki bítur.
Ósnertri
beitunni
loks upp skýtur.
Höfuð nautsins Himinhrjóðs
Hilmar ormi færir, ei til góðs.
Banvænn sýnist bitinn, þó
blóðið Gandsins ærir hugarró.
Fylgja mun þér fegurð ef
fellir orminn langa, sérhvert skref.
Eiturgusa
æta
má
ásjónu
og vanga, tapi sá.
Þriðja sinn kasta og þá hann tekur,
þóftuna mölvar og bátinn skekur.
Færið skal dregið af fullum krafti,
fátækleg hönd móti ormsins kjafti.
Reipið sker, gatar
glófa
.
Gegnum fer, særir lófa.
Krókur í kjaftinn rífur,
krækjan því, sker sem hnífur.
Áfram þeir berjast báðir,
bræður tveir, þreyttir,
þjáðir
.
Takast á, tíminn líður,
tengir þá strengur
stríður
.
Höfuðið birtist í hafsins róti,
heggur í bátinn og
streitist á móti
.
Blaðinu sting svo að blóð út
stekkur
,
bölvandi skepnan í hafrótið sekkur.
Þegar hitti Þór
þá munum við berjast.
Staðfastur og stór
standa mun og verjast.
Agnið beit víst á,
Ásgarður mig svíkur.
Jörmungandur, já,
ég er sá sem víkur.
Báru
klýfur
bátur
og bátsmaður er kátur.
landið tekur,
fleyið
festir,
þar fljúga yfir nokkrir þrestir.
Aftur skepnan skríður
í skjól og þar hann bíður.
Létti til og lægði storminn
er lagði Hilmar Miðgarðsorminn.
Snæbjörn Ragnarsson
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
Nú skuluð þið skrifa endursögn um baráttu Þórs við orminn.
Látið koma fram:
• aðstæður (t.d. veður og náttúra).
• þrjár tilraunir Þórs til að fanga Miðgarðsorminn.
• hver endalokin voru.