83
TÆKNI OG TJÁNING :
SKAPANDI SKÓLI
Ef unnið er með hikmyndir eða hefðbundna teiknimyndagerð má gera ráð fyrir
því að teygist úr vinnuvikunni fram á helgina, eða fram í næstu viku á eftir, þar
sem mikill tími fer í að búa til sjálf myndskeiðin. Slík vinnuvika gæti þá litið
einhvern veginn svona út:
Vel má hugsa sér að einfalt kvikmyndaverkefni sé unnið á mjög skömmum tíma,
til dæmis 80 mínútum, ef nemendur búa að talsverðri reynslu en yfirleitt er betra
að gera ráð fyrir meiri tíma. Mikilvægt er að tíminn sem gefinn er í kvikmynda-
verkefni sé nægur og leggja þarf áherslu á það í upphafi að verkefnin verði ekki
stærri en svo að þeim megi ljúka í tæka tíð.
Allt hefst með hugmynd
Öll kvikmyndagerð hefst á hugmynd. Oft þarf hún að tengj-
ast einhverju efni sem verið er að vinna með í skólanum og
þá kemur hún gjarnan frá kennaranum. Í þeim tilvikum get-
ur verið gott að nemendur eigi val á milli þriggja til fjögurra
viðfangsefna og hafi eitthvað að segja um efnistök. Þeir gætu
til dæmis fengið að ráða því hvort gera eigi leikna kvikmynd,
heimildarmynd eða einhvers konar hreyfimynd um efnið.
Mikilvægt er að ræða efnið og möguleika sem í því felast áður
en hafin er vinna við handrit eða söguborð.
Handrit – söguborð (skjáskissur)
Veigamikill þáttur í allri kvikmyndagerð er að skrifa handrit eða rissa upp sögu-
borð (e.
storyboard
) sem svo hefur verið nefnt á íslensku og er stundum kallað
skjáskissur. Til fróðleiks má taka fram að enska orðið
board
vísar til töflu með
grunnum hillum undir handhæg myndaspjöld sem ræða má og raða að vild.
Þannig er mikilvægum atriðum haldið til haga og þeir sem vinna saman að
myndgerðinni fá eina og sömu sýn á verkið áður en haldið er af stað í tökur og
Mánudagur
Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
Hugmynda-
vinna og
handritsgerð
Taka til allt
efni og áhöld
sem þarf
fyrir tökur
og undirbúa
tökurnar.
Tökur eða
teikning mynd-
skeiða
Tökur eða
teikning
myndskeiða
Tökur eða
teikning
myndskeiða
Klipping og
hljóðsetning
Sýning




