Previous Page  87 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 87 / 108 Next Page
Page Background

85

TÆKNI OG TJÁNING :

SKAPANDI SKÓLI

Á eftirvinnslustigi er kvikmyndin sett saman. Hún er klippt og hljóðsett, tónlist

er fundin til, leikin eða samin sérstaklega og sett inn þar sem við á. Þarna geta

þó nokkuð margir aðilar komið við sögu en allur gangur er á því, allt eftir að-

stæðum hverju sinni, áhugasviði nemenda og færni, hvort um mikla samvinnu

alls hópsins er að ræða á þessu stigi eða einstaklingsvinnu og samvinnu örfárra

einstaklinga.

Sýning

Að lokum er svo komið að útgáfu myndar eða sýningu en í henni koma saman

og endurspeglast allir þættir kvikmyndagerðarinnar. Segja má að hún sé bæði

hreyfiafl og umbun í þeirri orkufreku vinnu sem kvikmyndagerðin krefst.

Mat á kvikmynd sem verkefni

Þegar meta á kvikmynd og annað miðlunarefni eftir nemendur í grunnskóla er

mikilvægt að einblína ekki á lokaafurðina heldur skoða allt vinnuferlið að baki.

Við úrlausn verkefnisins ættu að hafa orðið til ákveðnar vörður á ýmsum stigum

sem hægt er að staldra við, auk þess sem tækifæri eiga að gefast í sjálfu vinnu-

ferlinu fyrir kennara og nemendur til að fara yfir það sem komið er og ræða

næstu skref. Góður tímapunktur til að hlaða vörðu og fara yfir stöðuna er við

lok handritsgerðar áður en haldið er í tökur. Á þeim tímapunkti er enn hægt

að skerpa á þeirri hugmynd sem unnið er með og fara yfir sýn nemenda á loka-

afurðina. Þarna er einnig tækifæri til að fara yfir þætti eins og myndbyggingu og

sjónarhorn í tökum og fyrirkomulag á tökustað. Það getur svo verið gott að setja

niður aðra vörðu undir lok samsetningar, áður en samsett afurð er sett í sýningu

eða henni skilað. Þá er enn hægt að skoða hvernig hlutirnir raðast saman, hvort

frásögnin sé nógu skýr, velta fyrir sér anda myndarinnar, ræða val á tónlist og

ákveða hvort viðeigandi hlutir séu allir á réttum stöðum. Þegar lokaafurðin er

svo metin er mikilvægt að hafa í huga hvað lagt var upp með. Ef sett voru einhver

sérstök markmið sem snúa beint að kvikmyndagerðinni sjálfri, eins og til dæmis

að fylgja tilteknum reglum við myndbyggingu og val á sjónarhornum, er hægt

að meta þau atriði sérstaklega um leið og farið er yfir atriði eins og efnistök eða

úrvinnslu hugmynda og upplýsinga. Mikilvægt er að hafa ávallt í huga að nám í

vinnu af þessu tagi fer fram í öllu ferlinu og felur svo miklu meira í sér en hægt

er að greina í lokaafurðinni.