Previous Page  90 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 90 / 108 Next Page
Page Background

88

er flett af einni kyrrmynd á þá næstu. Orðið leirkarlamyndir hefur stundum

verið notað um þessa tækni hér á landi, væntanlega vegna þess að persónur

og leikmunir úr leir eru oft notaðir til að segja sögur með hikmyndum enda

auðvelt að láta hluti taka breytingum eftir því sem sögunni vindur fram þegar

allt er úr mjúkum leir. Hins vegar má nota ýmislegt annað en leir í hikmynd-

ir, litríkir karlar og kerlingar úr leikfangasettum eru mikið notuð, töfra má

fram með föndri víkingaskip og skála frá landnámsöld eða hallir í ævintýr-

um og hversdagslegir hlutir í skólanum, eins og yddari, bréfaklemmur og epli

geta öðlast líf með þessum hætti. Þá má nefna þá aðferð að bregða á leik með

texta, útklippt orð og stafi eða töfluskrift sem auðvelt er að spinna og þurrka

út eftir þörfum. Þannig má til dæmis leika sér með dægurlagatexta og efla

um leið þekkingu á erlendum málum. Hljóðvinnsla er mikilvægur þáttur í

hreyfimyndagerð og brýnt er að huga vel að leikrænni tjáningu við upptökur

á tali. Hugbúnaður til að raða ljósmyndum á tímalínu og fyrir hljóðsetningu

er fáanlegur fyrir allar gerðir tölva og eitthvað af slíkum hugbúnaði er hægt

að nálgast ókeypis á netinu. Spjaldtölvur eru þó sérstaklega hentugar fyrir

vinnu af þessu tagi því þær geta sameinað í einu tæki myndavélina sem tekur

myndirnar, góðan hljóðnema og hugbúnaðinn sem notaður er til að setja allt

saman og fullklára verkið.

Leikur að tækni

Flettimöguleikar, tímastillingar og efnisgerð

Búa má til prýðilegar hreyfimyndir með því að setja saman sögur, teikna

persónur og leikmuni á gagnsæjum grunni í ýmsum teikni- og myndvinnslu-

forritum og láta þær birtast, fara um sviðið og tjá sig í venjulegri skjákynn-

ingu. Hægt er að nota hversdagslega fletti- og birtingarmöguleika í skjákynn-

ingu til að láta talblöðrur og hugsanaský, teiknuð form og myndefni birtast,

hreyfast og hverfa með ýmsu móti, fylgja teiknuðum ferli og kalla fram bæði

tal og hljóð. Þegar allt er komið á sinn stað, færanlegar myndir, hreyfingar,

flettingar, hljóð, talblöðrur, textar, lestur og bakgrunnsmyndir er sjálfkeyr-

andi kynningin með tímastillingum vistuð sem venjulegt kvikmyndaskjal.

Sagan er sett upp í venjulegu skjákynningarskjali í Powerpoint frá Microsoft.

Þegar allt er klárt er skjalið vistað með sniðinu Windows Media Video og fær

þá nafnaukann .wmv. Afraksturinn er hreyfimynd og minnir á teiknimyndir

fyrir börn. Vinna við uppsetningu og tímasetningar minnir töluvert á for-

ritun kynninga og leikja í forritunarumhverfi fyrir börn og helst vel í hendur

við þess háttar verkefni.

Rauðhetta og úlfurinn á ferð

og flugi í Powerpoint