Previous Page  91 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 91 / 108 Next Page
Page Background

89

TÆKNI OG TJÁNING :

SKAPANDI SKÓLI

Myndræn forritun og hönnun leikja

Ýmis hugbúnaður hefur á seinni árum og áratugum verið þróaður með það

fyrir augum að kenna börnum og unglingum forritun, í fyrstu með einföldum

textaskipunum en í seinni tíð oftast með samsetningu á myndrænum eining-

um á skjánum. Með þeim má þá setja saman stutt forrit eða svonefndar stefjur

(e.

scripts

) sem stýra svonefndum kvikum (e.

sprites

) um svið eða bakgrunna á

skjánum og kalla fram hreyfingar, texta og hljóð. Skýrt dæmi um þetta er hug-

búnaðurinn

Scratch

sem á ættir að rekja til Massachussets Institute of Technology

og margir þekkja. Mitchel Resnick hefur leitt þróun þess hugbúnaðar og fjallað

af smitandi eldmóði um gildi skapandi forritunar fyrir unga nemendur. Hug-

takið stefjur kemur úr heimi forritunar en kvikar eru viðtekið hugtak notað við

hönnun margmiðlunarefnis. Úr þessum efniviði má útbúa kynningar, sögur og

leiki svo eitthvað sé nefnt. Þarna reynir á miðlun líkt og í gagnvirkri skjákynn-

ingu, hikmynd eða hefðbundinni kvikmyndagerð en líka skemmtilega forritun

og stýringar. Ýmis einföld öpp eða forrit eru líka sérstaklega til þess ætluð að búa

til og móta tölvuleiki og sum þeirra eru vel við hæfi ungra nemenda.

Þjarkar og forritun

Skapandi vinnu og þekkingarleit má miðla með ýmsu móti og hugtakið læsi má

teygja yfir ótal svið samskipta og tjáningar. Til að verða læs á tækni og margbrot-

ið umhverfi í tæknivæddum heimi er tilvalið að spreyta sig á hönnun, samsetn-

ingu og forritun þjarka (e.

robot

). Hægt er að fá ágætan búnað af ýmsum gerðum

ætlaðan börnum og unglingum á ýmsum aldri til þeirra nota. Kunnasta dæmið

um forritanlegan þjark frá fyrri tíð er skjaldbakan sem Seymour Papert hannaði

á sínum tíma við Massachussets Institute of Technology eða MIT í Boston til að

taka við skipunum úr forritunarmálinu Logo en það var samið til að ýta undir

Stefja úr Scratch

Með Makey Makey

má breyta hlut í hnapp

Kviki úr Scratch

Finkan er þjarki