81
TÆKNI OG TJÁNING :
SKAPANDI SKÓLI
samstarfsvilji og skipulagsfærni, verksvit og rýmisgreind, tilfinning fyrir leik og
framsetningu, listrænt auga og hæfileikar til að rýna í mismunandi sjónarhorn,
og er þá margt ótalið. Hægt er að beita kvikmyndagerð sem kennsluaðferð með
nemendum á öllum skólastigum, þó að vissulega ráði elstu nemendurnir best
við að vinna sjálfstætt að flestum þeim verkþáttum sem þarna koma saman.
Best gengur þegar nemendur hafa fengið að kynnast kvikmyndagerð og staf-
rænni miðlun á fyrri stigum skólagöngunnar og geta haft stuðning af góðum
leiðbeiningum. Á vef Menntamálastofnunar má finna námsefnið,
Margmiðlun –
stafræn miðlun
ætlað til kennslu í grunnskólum um kvikmyndagerð og ýmsa
þætti margmiðlunar.
Kvikmyndagerð í skólastarfi má útfæra á ótal vegu. Undir kvikmyndaformið
falla ásamt fleiru leiknar kvikmyndir af öllu tagi, heimilda- og fræðslumyndir,
náttúrulífsmyndir, fréttamyndir, kynningarmyndir, auglýsingar, skemmtiþættir,
grínþættir, tónlistarmyndir, teiknimyndir, flettimyndir og ýmiss konar hreyfi-
myndir, svo sem hikmyndir (e.
stopmotion
) sem stundum eru nefndar leirkarla-
myndir. Hvert sem verkinu er stefnt er vinnuferlið oftast og að mestu leyti það
sama; það hefst með
hugmynd
og heppilegast að þróa hana með skissum á sögu-
borði og skipulegri
handritsgerð
. Þá tekur við frekari
undirbúningur
og á
fram-
leiðslustigi
tökur og klipping ásamt hljóðsetningu og frágangi og að lokum
sýning
ásamt frekari
dreifingu
á lokaafurð. Fjallað verður nánar um sum þessi atriði hér
á eftir.
Af dæmum um viðfangsefni þar sem kvikmyndagerð hentar vel sem kennslu-
aðferð mætti nefna ýmsa efnisþætti í náttúrufræði, eðlisfræði eða sögu. Í nátt-
úrufræði má fjalla um ljóstillífun, hringrás vatns eða taugakerfi með því að láta
nemendur lýsa pælingum sínum og þekkingu á viðfangsefninu í hreyfimynd-
um með teikningum eða öðru myndefni, hreyfingum og máli eftir nemendur.
Eðlisfræðin býður líka upp á skemmtilega framsetningu og úrvinnslu í hreyfi-
myndum, svo sem um framleiðslu rafmagns, segulsvið jarðar eða göngu hennar
í kringum sólina. Skiptingu landsins í goðorð, skipan mála á alþingi hinu forna
eða valdatafli höfðingja á Sturlungaöld má lýsa á svipaðan hátt. Sögulega atburði
og frásagnir má svo setja upp með handritsgerð og leik. Þeir ættu að standa nem-
endum ljóslifandi fyrir hugskotssjónum eftir þá vinnu og allan þann undirbún-
ing sem henni fylgir. Óhætt er að fullyrða að efni sem nemendum er oftast gert
að læra af kennslubókum, hefur allt aðra stöðu í hugum nemenda sem hafa glímt
við það í kvikmyndagerð.
Að sjálfsögðu krefst kvikmyndagerð í skólum þess að tæki og tól til þeirrar vinnu
séu þar til staðar. Þessi tæki þurfa þó ekki að vera mikil eða flókin og segja má að
Af vefnum Margmiðlun –
stafræn miðlun




