84
eftirvinnslu. Söguborð er í rauninni nokkurs konar handrit, bara skissað upp í
ramma líkt og atburðarás í myndasögu. Hver rammi rekur annan og gefur til
kynna myndskeið og framvindu í kvikmyndinni. Neðan eða ofan við rammana
eru svo oft skrifaðar athugasemdir, áhersluatriði eða annar texti sem styður
myndina í rammanum og varpar ljósi á efni hennar. Á þennan hátt má útbúa
handrit án þess að skrifa upp samtöl, lýsingar á umhverfi og kringumstæður í
löngu máli. Eftir handritsvinnu eða söguborðsgerð þarf svo að staldra við og
ræða afraksturinn til þess að hnýta alla lausa enda og íhuga frekari þróun áður
en lengra er haldið.
Framleiðsla: Tökur og eftirvinnsla
Þegar kvikmyndatökur eru vel undirbúnar eiga þær að ganga vel fyrir sig og
þurfa ekki að taka nema lítinn hluta af öllum þeim tíma sem fer í verkefnið. Áður
en tökur hefjast þarf að finna til þau tæki og tól sem nota á í upptökum, æfa leik
og framkomu, og finna til búninga og leikmuni. Á þessu stigi er nauðsynlegt
að hafa handritið eða söguborðið til hliðsjónar. Gott getur verið að útbúa ná-
kvæman lista yfir það sem þarf að vera á tökustað því dýrmætur tími fer til spillis
ef eitthvað gleymist. Góður undirbúningur skilar sér nær alltaf í betri upptökum,
ekki síst þegar margir leikarar, ásamt kvikmynda- og hljóðupptökufólki og leik-
stjóra, þurfa að vinna saman.




