Previous Page  84 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 84 / 108 Next Page
Page Background

82

með tilkomu spjaldtölvunnar hafi nemendur fengið upp í hendurnar nær allan

búnað sem þarf til kvikmyndavinnu hvar sem vera skal og hvenær sem þörf kref-

ur. Auk þess má nýta snjallsíma til að taka upp myndskeið og stafrænar ljós-

myndavélar búa margar yfir kvikmyndatökubúnaði. Gæði í myndum og hljómi

kvikmyndanna geta vissulega verið misjöfn eftir því hvers konar tæki eru notuð

við upptökur en gott er að hafa í huga að ekki þarf alltaf að hafa fullkomna kvik-

myndatökuvél við höndina þegar beita á kvikmyndagerð við kennslu.

Samvinna

Kvikmyndagerð er þannig vaxin að þar þurfa margir að koma að verki. Hand-

tökin eru mörg og samvinna þarf að ganga vel til þess að verkið heppnist. Heilir

bekkir geta unnið saman að kvikmynd og á ákveðnum stigum vinnunnar hentar

vel að hafa hópinn stóran, svo sem við upptökur. Á öðrum stigum, eins og við

undirbúning, handritsgerð og eftirvinnslu, hentar betur að vinna í smærri hóp-

um. Þá getur verð gott að skipta bekkjum upp í smærri hópa þriggja til fjögurra

nemenda sem vinna að ákveðnum þáttum eða hlutum verksins en fá svo nem-

endur úr öðrum hópum að láni eftir þörfum þegar verið er að taka upp. Stund-

um fer vel á því að nemendur skipti með sér langri umfjöllun eða sögu, þá geta

margir leikið sama hlutverk og fengist við sömu verk, hver í sínum hluta eða

atriði myndarinnar.

Tímastjórnun

Kvikmyndagerð krefst þess að verkefninu sé settur ákveðinn tímarammi allt eft-

ir umfangi verksins. Til að átta sig á þeim tíma sem ýmsir þættir kvikmynda-

gerðarinnar kunna að taka getur verið gott að taka mið af venjulegri vinnuviku.

Í töflunni hér fyrir neðan er tilbúið dæmi um einfalda kvikmyndagerð látið falla

inn í eina vinnuviku.

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

Hugmyndavinna og

handritsgerð

Taka til allt efni og

áhöld sem þarf fyrir

tökur og undirbúa

tökurnar (staðsetn-

ingu, uppsetningu

tækja, sviðsmynd

o.s.frv.)

Tökur

Klipping og

hljóðsetning

Sýning