86
Kvikmyndaverkefni
Stuttmyndir
Í skólum er á hverjum degi unnið með efnisþætti, hugmyndir, frásagnir og sögur
sem geta verið fyrirtaks efniviður í stuttmyndir. Vinsælir snjallsímar og spjald-
tölvur eru prýðileg upptökutæki fyrir hljóð og lifandi myndir og hægt er að fá
hugbúnað í þessi tæki sem gerir kleift að klippa til og setja saman fullunnar
myndir og senda frá sér. Fartölvur og hefðbundnar borðtölvur eru svo flestar
hlaðnar einföldum hugbúnaði sem hægt er að nota til samsetningar á mynd-
skeiðum úr síma eða myndavél. Tæknilega séð er því hægur vandi fyrir nemend-
ur að búa til stuttar kvikmyndir og skila sem verkefnum. Þeir þurfa aftur á móti
að fá hvatningu á kvikmyndasviðinu og þjálfun í að leggja upp stuttar myndir
með söguborði, handriti og leikrænni tjáningu þegar það á við. Einnig þarf að
fjalla um grundvallaratriði í tökum, klippingu og hljóðsetningu. Á vef Mennta-
málastofnunar er að finna aðgengilegt margmiðlunarefni um stafræna miðlun
þar sem farið er í gegnum allt þetta ferli frá handriti að lokaafurð og gefin góð
ráð varðandi undirbúning og upptökur. Kynna má áhugaverðar kvikmyndir eða
valið efni á borð við fréttir og auglýsingar og láta nemendur greina tökur, lýsingu,
samsetningu myndskeiða, yfirbragð og hljóð. Til marks um gildi svona vinnu má
nefna unglinga sem fengu það verkefni að líkja eftir þriggja mínútna langri mynd
þar sem flutt var vinsælt lag. Þeir töldu þetta létt verk en áttuðu sig fljótlega á því
að í myndinni voru næstum 90 myndskeið!
Brot úr Gísla sögu Súrssonar
leikin og birt á YouTube




