87
TÆKNI OG TJÁNING :
SKAPANDI SKÓLI
Heimildarmyndir
Að gera heimildarmynd er rannsóknartengd nálgun á viðfangsefni og efnistökin
tengjast að einhverju leyti hefðbundnari skólaverkefnum eins og heimildarit-
gerð. Við gerð heimildarmynda er í flestum tilvikum lagt upp með skýrt mark-
mið um það hvað á að kanna, spurningar sem leita á svara við eða einhverju
sem fylgja á eftir yfir ákveðið tímabil eða á ákveðinni vegferð. Að auki þarf að
huga að því að heimildarmynd er myndræn og hljóðræn frásögn og gera frá upp-
hafi ráð fyrir áhorfendum og upplifun þeirra. Þess vegna er mikilvægt að huga
vel að byggingu, setja markmiðin skýrt fram í upphafi, kynna vel fyrir áhorf-
endum persónur sem leiða á fram eða fylgja eftir og taka saman í lokin helstu
niðurstöður. Hafa má í huga að góðar heimildarmyndir eru oft teknar yfir lengri
tíma en auðvelt er að koma við í skólastarfi og settar saman úr miklu efni. Þættir
sem lúta að kvikmyndatöku, útliti og stíl skipta einnig máli. Er áherslan á að
taka myndina upp með myndavélina stöðuga á fæti eða á að fylgja myndefninu
eftir handhelt? Aðrir þættir kvikmyndagerðar geta síðan haft mikil áhrif á þá
stemmningu sem á að skapa í heimildarmyndinni, og má sem dæmi nefna liti
og birtu við tökur og eftirvinnslu, hrynjandi í klippingum, tónlist og leturgerðir.
Heimildarmyndir eru oft á alvarlegum nótum en geta líka verið í léttum dúr, allt
eftir því hvaða leið er ákveðið að fara.
Hikmyndir
Hikmyndir (e.
stop motion animation
) eru teknar með því að smella ljósmynd
eftir ljósmynd af hlutum sem hreyfðir eru örlítið á milli þess sem smellt er af.
Myndunum er svo raðað upp á tímalínu þannig að hægt er að spila þær hverja á
fætur annarri á miklum hraða líkt og ramma í kvikmynd bara ívið hægar. Sá sem
horfir á þær fær á tilfinninguna að hlutirnir hreyfist úr stað þegar í reyndinni
Úr hikmynd um morðið
á John F. Kennedy




