79
TÆKNI OG TJÁNING :
SKAPANDI SKÓLI
Hljóðefni
Fréttir, þættir, viðtöl og spjall
Nemendur geta spreytt sig á gerð útvarpsfrétta eða útvarpsþátta með viðtölum og
spjalli um áhugaverð efni sem þeir velja sjálfir. Ótal efnissvið koma til greina. Einnig
mætti taka fyrir viðfangsefni tengd námsefni í skólanum og bjóða nemendum upp á
vel valda kosti. Nemendur gætu byrjað á að rýna í dagskrár hljóðvarps og hlýtt á brot
úr þáttum heima fyrir. Í skólanum mætti taka fyrir valinn þátt eða hluta úr þætti af
neti, hlýða á hann saman og stöðva þáttinn öðru hverju til að ræða efnistök og aðferð
þáttarstjórnanda. Nemendur ættu að ræða vandlega val sitt á efni og þáttarsniði, hlut
tónlistar í þættinum sem búa á til, mögulegt stef þáttarins, hvað mætti taka fyrir og
hvernig. Gestir geta verið nemendur sjálfir, nemendur í hlutverki annarra eða fólk
utan skólaveggja. Atriði eins og kynjahlutföll, málfar og formlegheit má ræða, stíg-
anda í þættinum, ris og niðurlag, kynningu á umsjónarmönnum og gestum, áhuga-
kveikjur, hljóðlaus samskipti samtarfsmanna í þættinum, framígrip og fleira í þeim
dúr. Gera má tilraunir með raddstyrk, framsögn, tónfall og talhraða áður en lagt
er í upptökur á þættinum sjálfum. Áhugavert gæti líka verið að ná tali af raunveru-
legum þáttastjórnanda við einhverja útvarpsstöðina og forvitnast um vinnulag við
þáttagerð. Ef nemendur vinna að þáttagerð í mörgum smærri hópum mætti koma
sér saman um fjölbreytta dagskrá með þáttum af ýmsu tagi. Hljóðskjölunum má
safna saman og dreifa með ýmsu móti. Viðráðanleg verkefni í aðdraganda svona
vinnu gætu falist í að búa til eina frétt um einfalt efni, velja lítinn lagbút í þáttarstef,
semja stutta útvarpsauglýsingu eða taka viðtal að hætti blaðamanna við vel valinn
viðmælanda. Ef leggja á áherslu á ljóð eða tónlist tengda námsefni í skólanum mætti
líka biðja nemendur að setja saman stuttan þátt með einföldu sniði, úrvali ljóða eða
laga, stuttum kynningum á milli ljóða eða laga og jafnvel kveðjum til hlustenda!
Upplestur, leiklestur og leikhljóð
Hljóðupptökur geta verið gagnlegar þegar beina á athygli að leshraða, hikum við
lesturinn, áherslum, tónfalli og framsögn. Kennari getur beðið nemendur að lesa ljóð
og stutta texta inn á spjaldtölvu eða síma og hlýtt með þeim á afraksturinn eftir því
sem tími og svigrúm leyfa. Hvetja þarf nemendur til að lesa og tala af þrótti og inn-
lifun og fá þá til að greina mun á dauflegri og grípandi framsögn. Fyrir nemendur er
að gott að æfa upplestur og þegar fram í sækir má gera tilraunir með fleira, hlutverk
þular, leiklestur og jafnvel leikhljóð. Upptökum á ljóðum, skrýtlum, gátum, stuttum
þjóðsögum eða öðru því um líku mætti safna saman og koma fyrir í skemmtilegri
skjákynningu eða gagnvirku vefefni með textareitum og viðeigandi myndum.




