78
Hljóðhönnun
Stafræn hljóðhönnun snýst um að skilgreina, útvega, eiga við og búa til hljóð, oft
til nota í hljóðvarpi eða tónlistarflutningi en líka samsettu efni, kvikmyndum,
hvers konar hreyfimyndum, rafbókum, skjákynningum, veflausnum, tölvuleikj-
um, margmiðlunarefni, alls konar hugbúnaði, jafnvel vélbúnaði og notendaskil-
um. Hljóð eru áhrifarík í allri miðlun og oft vanmetinn þáttur í umhverfi okk-
ar. Þegar fjallað er um hönnun margmiðlunarefnis er hljóðþættinum stundum
líkt við olnbogabarn í stórum hópi systkina, hann er ákaflega mikilvægur en
fellur oft í skuggann af uppsetningu og grafík, myndefni, hreyfingum og texta.
Hljóð vekja viðbrögð og tilfinningar, sækja að okkur úr öllum áttum, gera okk-
ur angurvær, fylla okkur fjöri, smjúga í gegnum veggi og vekja börn af værum
blundi í móðurkviði!
Upptökur og hljóðvinnsla
Í skólastarfi má hafa margvíslegt gagn af hljóðupptökum og nú er auðveldara en
áður að koma þeim við. Gott er að eiga í hverjum skóla vandaða hljóðnema og
upptökutæki en með snjallsíma eða spjaldtölvu við höndina er hægur vandi að
grípa til hljóðupptöku hvenær sem þurfa þykir. Með einföldum hugbúnaði má
svo klippa til hljóðbúta og setja saman, deyfa og styrkja, snúa við og bjaga, allt
eftir þörfum. Hægt er vinna með hljóð á mörgum rásum ef þörf krefur og búa til
tóna og hljóð frá grunni. Þá má nefna vefsetur sem bjóða upp á hljóð úr mörgum
áttum til margvíslegra nota. Um þetta má lesa nánar á fylgivef bókarinnar.
Miðlun og hljóð
Hljóð gegna mikilvægu hlutverki í kvikmyndum og með því að glíma við hljóð-
setningu má fá dýrmæta innsýn í eðlisþætti og eiginleika myndmiðla. Hljóð geta
brúað klippingu á milli myndskeiða, ljáð myndefni nýja merkingu, skapað eftir-
væntingu, kveikt hugrenningar og vakið með áhorfendum hrollkaldan ótta.
Nota má hljóðupptökur til að miðla texta og hann má styðja viðeigandi hljóð-
um. Tónlist getur borið upp myndasýningar og þannig mætti lengi telja. Í öðrum
tilvikum getur verið fullt tilefni til að vinna með hljóðupptökur og hljóðefni án
þess að aðrir þættir miðlunar komi þar við sögu.




