80
Tónlistarflutningur
Upptökur og hljóðvinnslu má að sjálfsögðu nota við hvers konar tónlistarflutn-
ing, söng og spil. Við suma skóla er kórastarf og allir nemendur ættu að fá tæki-
færi til að venjast söng og dansi. Áhugasamir kennarar ýta stundum undir og
styðja við hljómsveitarstarf, margir nemendur spila á hljóðfæri og það má færa
sér í nyt þegar finna á til tónlist og stef við efnisgerð. Nemendur geta spreytt sig á
gerð sönglagatexta eða lagasmíð og fengið að leggja til tónlistaratriði eða leikræna
tjáningu í bland við tónlist á skemmtunum í skólanum. Þegar margir eru saman
má búta niður lagatexta og skipta hendingum á milli nemenda svo að fleiri kom-
ist að. Þá reynir líka á samkomulag um verkaskiptingu en líka greiningu á takti,
raddstyrk, raddsviði, samhljómi og næmi fyrir réttu lagi og í því getur falist ýmis
lærdómur. Hljóðver, hljóðfæri, hljóðnemar, tengi, snúrur og hljóðflutningskerfi
ásamt rúmgóðu og vel lýstu sviði greiða fyrir verkefnum og tónlistariðkun af
þessum toga. Í skapandi skólastarfi á að vera sjálfsagt mál að taka lagið eða grípa
í hljóðfæri þegar svo ber undir, rétt eins og hamar eða pensil. Hljóð og mynd má
svo alltaf grípa á spjaldtölvu, síma eða tökuvél og nýta með ýmsu móti.
Kvikmyndagerð
Nýta má kvikmyndagerð við allra handa verkefnavinnu innan greinasviða eða
þvert á greinar við samþættingu og þemavinnu. Í kvikmyndagerð reynir á fjöl-
þætta færni nemenda og í því vinnuferli sem hún býður upp á felast tækifæri
sem henta breiðum hópi nemenda. Þar mætast þekking og sköpunarkraftur,




