77
TÆKNI OG TJÁNING :
SKAPANDI SKÓLI
samtöl og skýringartextar birtast í talblöðr-
um, hugsanaskýjum og jaðarreitum sem eru
í nánu sambandi við myndefnið og skipan
mynda í ramma. Myndefnið má gera á ýmsa
vegu, persónur má teikna frá grunni á blað
eða skjá eða byggja á leik og ljósmyndum sem
hægt er að útfæra með ýmsu móti í mynd-
vinnsluforritum eða nota óbreyttar. Mörg
forrit bjóða upp á auðvelda uppsetningu á
myndasögum og hafa sum verið mikið nýtt í
skólum. Forrit fyrir spjaldtölvur eru sérstak-
lega aðgengileg og nýta vel þá möguleika sem
fylgja innbyggðri myndavél. Skil á mynda-
sögu geta til dæmis verið á veggspjaldi,
prentuðu út eða teiknuðu frá grunni, í hefti
vistuðu með PDF-sniði eða í stafrænni og
jafnvel gagnvirkri bók.
Hreyfimyndir
Með því að nýta tæknina í sinni einföldustu mynd er mögulegt að búa til hreyfi-
myndir eða einfaldar teiknimyndir með ungum börnum. Finna má þó nokk-
uð marga valkosti þegar kemur að hugbúnaði fyrir spjaldtölvur, smáforrit eða
öpp, sem byggja á þeirri hugmynd að handstýra teiknuðum eða ljósmynduðum
persónum um skjáinn, leiklesa fyrir þær á svipaðan hátt og í brúðuleikhúsi og
taka upp bæði hreyfingar og hljóð. Yfirleitt er hægt að finna í svona hugbún-
aði tilbúnar persónur ef áherslan á að vera á sögugerðina en síður á hönnun og
persónusköpun en einnig má búa til persónurnar frá grunni, til dæmis með því
að teikna þær í teikniforriti, með því að teikna þær á blað og taka mynd af þeim á
myndavél spjaldtölvunnar, eða með því að taka myndir af sjálfum sér og öðrum
til að hafa fyrir sögupersónur eða leggja grunn að tilbúnum persónum. Þá mætti
nefna ýmis kerfi sem gera kleift að útbúa flettimyndir, stundum með gagnsæi
í vinnsluham sem sýnir næstu kyrrmyndir, tækni kennda við glær lögin í lauk
(e.
onion skinning
), eða bjóða upp á leik með búkhreyfingar, fígúrur með liða-
mót og áhugaverða hreyfimöguleika. Með slíkum hugbúnaði má oft fá mjög góða
hugmynd um hönnun atburðarásar og hreyfinga í teiknimyndum. Gott er að
vanda val á söguefni og ýta með því undir vönduð vinnubrögð. Söguefnið má að
sjálfsögðu tengja allra handa námsefni í skólastarfi.
Myndasaga unnin í Comic Life




