Previous Page  78 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 78 / 108 Next Page
Page Background

76

Líkön, leikbrúður og hönnun í þrívídd

Að búa til líkan er góð leið til að sýna hvernig hlutir hafa hugsanlega litið út eða

gætu hugsanlega lítið út. Dæmi um verkefni af þessu tagi er þegar sýna á hvernig

fólk bjó fyrr á tímum eða gæti búið í fjarlægri framtíð. Gefa má ímyndunaraflinu

lausan tauminn, byggja ævintýraheima eða leggjast í hönnun á nýju skólahúsi.

Líkön geta líka hentað til að sýna það sem er of smátt eða stórt til að greina með

berum augum eða er auganu hulið, hluti eins og sameindir, frumur, innri líffæri,

fjallgarða og sólkerfi. Leikbrúður geta gætt tilbúin mannvirki lífi og þær má nota

í ýmiss konar verkefnavinnu, leikræna tjáningu og hlutverkaleiki, upptökur og

efnisgerð. Í líkanasmíðar og brúðugerð má nota pappír, pappa, tré, trélím, gifs,

leir, vír, klæði og plast svo að fátt eitt sé nefnt eða tilbúnar einingar á borð við

rör, flögur og kubba. Líkön má líka teikna í þar til gerðum hugbúnaði sem skilar

þeim af sér sem tvívíðum myndum á blaði eða skjá eða þrívíðri teikningu sem

velta má á alla vegu og jafnvel taka upp á skjánum. Líkanagerð er áhugaverð fyrir

margra hluta sakir og hefur ótvírætt menntagildi þegar til dæmis myndlist og

leikmyndagerð, byggingarlist og verkfræði eru annars vegar.

Sögugerð

Myndasögur

Teiknimyndasögur hafa verið vinsælt lesefni frá gamalli tíð og setja sterkan svip

á umhverfi okkar allt fram á þennan dag. Þær eru vel til þess fallnar að efla lestur

og ritun en geta líka veitt dýrmæta þjálfun í að segja sögur og lýsa samhengi

á myndrænan hátt. Myndasögugerð er tilvalin þegar kenna á ritun eða mynd-

mennt og býr nemendur vel undir handritavinnu, kvikmyndun og leikræna

tjáningu. Myndasagan minnir á söguborð í kvikmyndagerð og vönduðustu

söguborð í kvikmyndageiranum eru líkust myndasögum. Hugrenningar,