Previous Page  77 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 77 / 108 Next Page
Page Background

75

TÆKNI OG TJÁNING :

SKAPANDI SKÓLI

flokkun og ríkjandi skipan á sjónrænan hátt. Oft má bregða á leik

með þessa hluti og setja myndræn gögn í skemmtilegan búning,

stöplar og línur geta tekið á sig ýmsar myndir og magntölur má

setja fram í litum og stærðum á lýsandi hátt. Sumu er auðvelt að

koma í kring í tölvu, annað getur gefist betur með gömlum og

góðum aðferðum.

Lifandi flutningur og skjákynningar

Munnleg kynning flutt með stuðningi af texta og myndum á tjaldi snýst fyrst og

fremst um að miðla efni til áhorfenda á skýran og skilmerkilegan hátt. Kynn-

ingin sjálf byggist oftast á texta sem nemendur hafa skrifað, myndskreytt og æft

sig í að kynna. Gott kynningarefni á að vekja áhuga áhorfenda og getur reynd-

ar verið af ýmsu tagi, skjákynningar geta birt teikningar og ljósmyndir, töflur

og gröf, hljóðupptökur og hljóðefni, hreyfimyndir og myndskeið eða blöndu

af þessu öllu. Mörg kerfi eru í boði og bjóða sum upp á tilkomumikla fletti-

möguleika, alls konar grafík og myndræna grunna. Mikilvægt er samt að skraut

og hrif (e.

effects

) taki ekki yfir kynninguna eða drepi henni á dreif. Byggja má

skjákynningu á myndum en ef texti er uppistaða í kynningu er gott að miða við

7x7-regluna

en samkvæmt henni ætti textinn á hverri skjámynd ekki að fara yfir

7 línur og 7 orð í línu. Sumir tala um

6x6-reglu

og sumir

5x5

. Fyrir viðtakand-

ann er næstum ómögulegt að lesa samfellt mál ef flytjandi talar um leið og oft

er gott að láta hverja skjámynd bera sem fæst boð sem koma á til skila. Skipuleg

framsetning er mikilvæg en líka myndir og uppbrot sem koma á óvart og kveikja

áhuga. Kynningar má vinna með nemendum á öllum aldri en fara þarf yfir það

með nemendum hvernig bestur árangur næst við hönnun og flutning. Sægur er

af stuttum kennslumyndum á netinu sem kennarar geta nýtt sér og byggt á þegar

þeir fara yfir þetta með nemendum sínum. Einnig er auðvelt að verða sér úti um

skemmtileg kynningarforrit sem hlaða má ókeypis niður af netinu. Gömul og

góð forrit geta líka þegar grannt er skoðað verið bæði lipur og öflug tól sem bjóða

upp á ýmsa áhugaverða möguleika. Á vef bókarinnar er vísað á ýmis kynningar-

forrit, sem skólar geta nýtt, auk mynda um áhrifaríka hönnun og kynningar.

Gagnvirk skjákynning