Previous Page  59 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 59 / 108 Next Page
Page Background

57

HLUTVERKALEIKIR OG RAUNTENGT NÁM :

SKAPANDI SKÓLI

Vinna má með nafnorð og sagnorð á sama hátt og jafnvel nota þá hluti sem tíndir

hafa verið fyrir einn orðflokk í vinnu með aðra orðflokka.

Hugmyndir að vinnu með hlutina sem tíndir voru. Hér er gengið út frá lýsingar-

orðum:

1.

Valdir eru þrír hlutir í senn af handahófi og þeir sem tíndu þá hluti eiga að

meta þyngd, fegurð, form eða annað sem segja má að hlutirnir eigi sameig-

inlega, með því að stigbreyta. Röð hlutanna þarf þá væntanlega að breytast

eftir því hvaða eiginleika um er að ræða hverju sinni:

Það fer svo eftir hlutunum og hugmyndaflugi nemendanna sjálfra hversu

mörg lýsingarorð hægt er að nota um hvern hlut. Einn og sami hluturinn

getur verið dekkri en eitthvað, ljósastur í einhverju öðru samhengi, mýkri en

eitthvað eða harðari en eitthvað annað, stór, minni … Einum finnst ryðguð

hjólabjalla fallegri en brotin fjöður á meðan annar metur það svo að krukku-

lok sé nytsamast af öllu því sem í boði er. Einnig má gera þetta að gátuleik

með því að láta aðra geta upp á því hvaða lýsingarorð hafi verið valið fyrir

hlutina með hliðsjón af því hvernig þeim er raðað.

2.

Nemendur standa í hring og kasta á milli sín einum hlut í einu þannig að sá

sem fyrstur heldur á hlutnum, til dæmis svörtum plasttappa, kastar honum

til einhvers annars í hringnum og segir

svartur

, sá sem grípur heldur áfram

með stigbreytinguna og segir

svartari

og kastar til þess þriðja sem klárar

Plasttappi

Krukkulok Steinvala

Húfa

Blautust

Húfan (hún) er óhreinust

Þessi hlutur er þungur

Þessi hlutur er þyngri

Þessi hlutur er þyngstur

Blaut

Fjöðrin (hún) er óhrein

Fjöður

Blautari

Hjólabjallan (hún) er óhreinni

Hjólabjalla