Previous Page  65 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 65 / 108 Next Page
Page Background

63

EITT OG ANNAÐ UM RITUN :

SKAPANDI SKÓLI

Samantekt

Hér eru nemendur látnir skrifa 40–50 orða samantekt úr því námsefni sem lesa

átti fyrir kennslustundina, eða öðru efni sem fengist er við og nemendur hafa

lesið. Þetta hvetur nemendur til að lesa það sem fyrir er lagt og hjálpar þeim að

muna það sem þeir lásu. Gefinn er afmarkaður tími fyrir skrifin, til dæmis þrjár

eða fimmmínútur. Þegar allir hafa skrifað sína samantekt má láta nemendur lesa

upphátt það sem þeir skrifuðu niður. Við þetta kemur gjarnan í ljós mismunandi

skilningur nemenda á viðfangsefninu jafnvel þó að allir hafi lesið sama textann

og oft getur þessi vinna leitt til góðra umræðna um efnið, sem aftur dýpkar skiln-

ing nemenda á því.

Lykilorð

Nemendur setja saman lista yfir þau lykilorð sem þeir finna úr stuttum texta

sem þeir lesa eða kafla í námsbók. Ef lestur textans sjálfs fer fram í kennslu-

stundinni þarf auðvitað að miða lengd hans við það og auk þess þarf að setja

einhver ákveðin tímamörk fyrir verkefnið allt. Út frá þessum lista (og ekki með

upprunalega textann fyrir framan sig) semja nemendur svo sinn eigin heildstæða

texta um viðfangsefnið. Þetta hjálpar nemendum að einbeita sér að lestri textans,

greina það mikilvægasta og muna innihaldið.

Ljóð

Hér er um svipaða vinnu að ræða og við lykilorðin því nemendur lesa texta sem

þeir síðan nota úr orð til að setja saman ljóð um efni hans. Þannig getur, svo tek-

ið sé dæmi úr náttúruvísindum, orðið til ljóð sem lýsir hlutum og vexti plöntu.

Þetta er ritunarvinna sem á sér jafnvel stað yfir nokkurra daga tímabil og er við

hæfi að þá sé lögð áhersla á fleiri þætti en innihaldið, ólíkt margri annarri ritun

sem gengur út frá hugmyndafræði

Ritunar til náms

. Dæmi um þetta er ljóð eftir

tvo drengi í 8. bekk grunnskóla: