Previous Page  62 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 62 / 108 Next Page
Page Background

60

Ekki þarf flókinn útbúnað til að nýta þessa leið í lestrarkennslu; einungis tvær til

fjórar tölvur útbúnar ritvinnsluforritum (mega gjarnan vera gamlar, endurnýtt-

ar) og prentara í skólastofuna. Nettenging er óþörf. Nemendur vinna saman í

pörum, læra bókstafina af lyklaborðinu og þróa með sér læsi með því að lesa orð,

setningar og stuttar sögur sem þeir sjálfir skrifa. Þannig tengjast ritun og lestur

á áþreifanlegan hátt í hugum nemenda.

Sumir kennarar ganga jafnvel svo langt að fresta eiginlegu skriftarnámi nem-

enda sinna þar til á öðru eða þriðja námsári, enda sýnir reynslan að handskrift

nemenda sem fá undirstöðu sína í lestri með því að nota lyklaborð við ritun er

jafnan betri en hjá jafnöldrum þeirra sem farið hafa hefðbundna leið í sínu lestr-

ar- og ritunarnámi. Aðferðafræðin nefnist

Að skrifa sig til læsis

(n.

Å skrive seg til

lesing

) og byggir meðal annars á eftirfarandi atriðum:

• Auðveldara er að skrifa en lesa, fyrir börn á aldrinum fjögurra til sjö ára.

• Auðveldara er að skrifa á tölvu en að handskrifa.

• Bókstafirnir á lyklaborðinu samsvara útliti bókstafanna á skjánum/blaðinu.

• Að lesa eigin texta er einfaldur undanfari þess að lesa texta annarra.

• Samvinna við skriftirnar ýtir undir málþroska og málvitund nemenda.

Ennfremur hentar aðferðin vel þeim nemendum sem eiga við lesörðugleika

að stríða, glíma við fínhreyfingavandamál eða aðra erfiðleika sem tengjast

skólagöngunni, auk þess að ná sérstaklega vel til drengja.

31

Ekki verður nánar

farið út í aðferðir eða aðferðafræði þess að skrifa sig til læsis, einungis látið nægja

að benda á þennan möguleika í kennslu yngstu nemendanna og geta þess að hér á

landi hefur TMF Tölvumiðstöð haft forgöngu um námskeiðahald tengt aðferða-

fræðinni.

Hér á eftir er sagt frá ritunarkennslu þar sem annars vegar er byggt á ákveðinni

aðferðafræði og hins vegar fjölbreyttum ritunarverkefnum sem hægt er að beita

á öllum stigum grunnskólans og í öllum námsgreinum.

Ritun til náms

Ein af fjölmörgum leiðum sem tilvalið er að beita markvisst í skapandi skóla-

starfi byggir á ritun sem náms- og kennsluaðferð. Á ensku nefnist þessi aðferð

Writing to Learn

32

en hefur hér fengi

ð

íslenska heitið

Ritun til náms.

Fræðimenn eru á einu máli um að ritun efli bæði gagnrýna hugsun og nám. Hér

er ekki síst átt við ritun sem felur í sér leið til að koma reiðu á hugsanir sínar og