61
EITT OG ANNAÐ UM RITUN :
SKAPANDI SKÓLI
sýna fram á eigin skilning. Þannig má segja að ritun til náms sé í raun leið til þess
að læra að hugsa. Aðferðin hjálpar nemendum að skilja og tileinka sér hugtök
sem verið er að vinna með í náminu, hvetur þá til að tileinka sér fjölbreyttar
upplýsingar, flokka þær, finna tengsl á milli þeirra og gera grein fyrir samhengi.
Þessi aðferð er að auki kjörin til að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir.
Kennarinn kemst að því hver þekking og skilningur nemenda er á því efni sem
fengist er við og getur sýnt þeim hvernig byggja má ofan á þá þekkingu.
Aðferðir
Ritunar til náms
eru fjölbreyttar en eiga það sammerkt að skrifin eru
óformleg og áherslan er á efnið en ekki stíl, málfar eða stafsetningu. Hér eru
teknar saman nokkrar leiðir sem hægt er að nota við þekkingarleit í tengslum við
nánast hvaða viðfangsefni sem er.
Flæðiskrif
Flæðiskrif (e.
freewriting
). Þetta er góð aðferð til að nota þegar nemendur vantar
hugmyndir að ritunarverkefnum. Galdurinn felst í því að nemandinn verður að
skrifa í 5–15 mínútur (kennarinn ákveður tíma) það sem kemur upp í hugann og
má ekki lyfta blýantinum af blaðinu eða taka fingurna af lyklaborðinu. Þessi að-
ferð getur verið góð þegar nemendur eru haldnir einhvers konar ritstíflu því oftar
en ekki laðar hún fram hugmyndir sem að lokum leiða til einhverra efnistaka.
Ef kennari vill heldur má afmarka flæðiskrifin við tiltekið efni með því að láta
nemendur svara valinni spurningu og fá til þess tíma sem þeir verða að nýta allan
í skrifin. Í sjálfu sér skiptir ekki svo miklu máli hvað er skrifað. Hér er dæmi
tekið af nemanda í 7. bekk sem átti að skrifa um siðaskiptin:
„Ég veit ekkert um siðaskiptin og get ekkert skrifað
um þau en þau eru samt eitthvað sem hefur með
trú að gera ég man ekki hvað en það hefur verið
skipt um einhvern sið eða eitthvað. Nú dettur mér
ekkert í hug meira að skrifa en var ekki eitthvað
um að einhverjir voru kaþólskir og svo var eitthvað
með alþingi í gamla daga og þá fer ég að hugsa um
Þingvelli hvort sem . . .




