Previous Page  61 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 61 / 108 Next Page
Page Background

59

EITT OG ANNAÐ UM RITUN :

SKAPANDI SKÓLI

Eitt og annað um ritun

Allir kennarar eru íslenskukennarar. Þetta er staðhæfing sem kennarar kannast

sjálfsagt flestir við. Enda er það svo að allt það sem kennt er í íslenskum skól-

um, þar með talin önnur tungumál en íslenska, byggir á móðurmálinu. Í nær

öllum námsgreinum og bóknámstengdum viðfangsefnum glíma nemendur við

tungumálið með ritun. Stundum með því að svara spurningum skriflega, stund-

um með ritun endursagna eða úrdrátta, stundum frjálsri ritun eða á annan hátt.

Mikilvægt er að viðfangsefni ritunar séu fjölbreytt og að fjallað sé um byggingu

texta, hugað að málfari, stafsetningu og notkun greinarmerkja. Svo er ekki síður

þýðingarmikið að fjalla markvisst um inntak ritaðs texta og ígrunda vel bæði

merkingu og stíl.

Færa má rök fyrir því og því verður varla á móti mælt að ritfærni færi fólki vald.

28

Sá sem á auðvelt með að skrifa og getur leikið sér að málinu er að jafnaði gjald-

gengari í samskiptum og samfélagslegri umræðu en sá sem ekki býr yfir sömu

færni. Að auki er ritlist mikilvægt náms- og kennslutæki, þar sem hún reynir á

nemandann við skapandi hugsun og rökræna ígrundun, krefst einbeitingar og

skerpir athyglisgáfuna. Af öllu þessu leiðir að leggja þarf rækt við ritunarkennslu

allt frá upphafi skólagöngu.

29

Að skrifa sig til læsis

Eins og gefur að skilja eru tengsl ritunar og læsis órjúfanleg. Kennarar á Norð-

urlöndum hafa á undanförnum árum nýtt þessi sterku tengsl til lestrarkennslu.

Þeir nota aðferðir norska menntunarfræðingsins Arne Trageton í ritun með

markvissum hætti strax í upphafi lestrarkennslunnar hjá yngstu nemendunum.

30

Nemendur nota tölvu til að læra stafina, skrifa út frá tali og læra að lesa um leið.