Previous Page  60 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 60 / 108 Next Page
Page Background

58

stigbreytinguna með því að segja

svartastur

. Í rauninni þarf ekki hlutina sem

tíndir voru til þess að gera þessa æfingu, hægt er að nota lítinn bolta eða

hnykil og velja lýsingarorð af handahófi en hitt getur verið skemmtilegt, að

nýta hlutina sem fundust úti við, því ekki er jafn auðvelt að kasta þeim öllum

eða grípa (til dæmis fjöður, plastpoka, hríslugrein, húfu) og svo krefst um-

hugsunar að finna þeim viðeigandi orð.

3.

Nemendur nýta þann hlut eða hluti sem þeir sjálfir tíndu eða leggja alla hluti

í púkk og þarf þá hver að velja úr því safni þann hlut sem hann vill nota.

Teiknuð er mynd af hlutnum og lituð eða teknar myndir og samin saga eða

ljóð þar sem hluturinn kemur við sögu og er jafnvel í aðalhlutverki.

4.

Svo má að sjálfsögðu að fara út í hefðbundnari vinnu með hlutina og vinna

með stigbreytingu í stílabækur og greina orðin nánar í málfræðivinnu og

stafsetningu, finna skyld orð og vinna enn frekar með þau.

Fleiri hugmyndir að útikennsluverkefnum má finna á fylgivef bókarinnar.

Fjöðrin sem hvarf

Eitt sinn var ég á fugli

en nú er ég í tómu rugli.

Það var gaman

þegar við vorum allar saman

en núna er ég ein

föst á bak við stein.

Einu sinni var steinn sem hét Steinn.

Hann átti heima í Steinafjöru með

steinafjölskyldunni sinni því allt í þessu

steinaríki var nefnilega úr steinum.

Dag nokkurn kom krakki í fjöruna

þar sem steinaríkið var. Krakkinn var

leiðindakrakki og fór að sparka í stein-

ana í fjörunni. Þetta líkaði Steini og

steinafjölskyldunni hans mjög illa og

þau ákváðu …

Auglýsing

Krukka leitar að lokinu sínu

Ég er krukka sem er búin að týna

lokinu mínu. Það er gyllt að utan

en hvítt að innan. Ef einhver

hefur fundið lokið fær hann

bláberjasultu í fundarlaun fyrir

að skila því.