Previous Page  54 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 54 / 108 Next Page
Page Background

52

Hlutverkaleikir og rauntengt nám

Rauntímaspunaleikur

Rauntímaspunaleikur (e.

live action role-playing game, LARP,

sbr.

larping

og

larper

) er oft kallaður LARP og hefur notið vaxandi vinsælda. Þátttakendur taka

sig saman um að leika og sviðsetja tiltekna lífshætti eða viðburði, stundum með

áherslu á leik og stundum yfirbragð og leikræna tjáningu. Sem dæmi má nefna

áhugafólk sem setur sig í stellingar víkinga og hefur til dæmis borið uppi Vík-

ingahátíðina í Hafnarfirði en hún hefur verið haldin ár hvert frá miðjum tíunda

áratug síðustu aldar.

Í rauntímaspunaleik tileinka nemendur sér þekktar persónur, til dæmis úr efni

sem verið er að vinna með í bókmenntum og sögukennslu, og leika þá atburði sem

fjallað er um. Hér væri upplagt fyrir samfélagsfræðikennara á unglingastigi að

nýta sér sögusvið þeirra Íslendingasagna sem verið er að vinna með í skólanum,

svo sem Brennu-Njálssögu og setja upp hlutverkaleik þar sem hver nemandi er í

hlutverki ákveðinnar persónu, hvort heldur um er að ræða burðarpersónur eins

og Gunnar á Hlíðarenda og Njál á Bergþórshvoli, Hallgerði langbrók og Bergþóru,

eða vinnuhjú, börn og aðra sem við sögu gætu komið í þeim þáttum verksins sem

teknir væru fyrir.

Í svona vinnu er mikilvægt að nota búninga og aðra fylgihluti og jafnvel umhverfi,

sem hjálpar nemendum sem best að lifa sig inn í söguna. Þannig væri uppsetning

á Njálsbrennu, aðdraganda hennar og eftirleik, áhrifamest ef nemendum gæfist

kostur á að vera úti í náttúrunni eða áhugaverðu manngerðu umhverfi á stað sem

hentað gæti sem sögusvið brennunnar. Auk þess felst mikill lærdómur í því að

skoða hvers konar fatnaður, amboð og vopn voru notuð á þeim tíma sem sagan

gerist og útvega eða búa til eitthvað sem líkist því sem best áður en sjálfur leik-

urinn hefst. Gaman er að taka upp kvikmyndabrot af þeirri vinnu sem fram fer í

aðdraganda sjálfs spunaleiksins, jafnvel ræða við valda þátttakendur og taka upp

leikinn sjálfan svo hópurinn geti rifjað upp undirbúning að leiknum, horft á leik-

inn og farið yfir reynsluna af honum að leik loknum.

Það fer eftir ýmsu hversu vel spunaleikur semþessi hentarmismunandi greinasvið-

um og aldursstigum en óhætt er að segja að skemmtilegt og lærdómsríkt er að

vinna með ýmsa námsþætti í lífsleikni, landafræði og sögu á þennan hátt. Vinna

mætti með íslensku eða erlend tungumál, textílmennt og smíði, myndmennt, tón-

list, íþróttir, dans og jafnvel matargerð allt eftir áherslum og viðfangsefnum.