Previous Page  57 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 57 / 108 Next Page
Page Background

55

HLUTVERKALEIKIR OG RAUNTENGT NÁM :

SKAPANDI SKÓLI

fyrir Barnabæ. Settir eru upp vinnustaðir í skólanum og þar eru fram-

leiddar vörur, fengist við listsköpun og glímt við önnur mál sem bæjar-

félög geta staðið frammi fyrir og þurft að leysa. Þarna er til að mynda

að finna vinnumálastofnun og bæjarstjórn. Hver nemandi fær laun fyrir

vinnu sína samkvæmt taxta og vörur og þjónusta eru verðlögð í gjaldmiðli

Barnabæjar. Verkefninu lýkur með því að skólinn er opnaður almenningi

sem kemur og nýtur þess sem þar fer fram og getur auk þess gert góð

kaup í ýmsum vörum, hvort sem um er að ræða textílvörur, kökumix,

hljóðbækur eða annan varning sem nemendur hafa útbúið og framleitt í

Barnabæ. Lærdómurinn sem nemendur draga af þessari viku í Barnabæ

er margvíslegur og lýtur ekki bara að samskiptum og ábyrgð heldur líka

ákveðnum handtökum við framleiðslu kerta og afgreiðslu á kaffihúsi eða

framboði og eftirspurn á markaði og er þá fátt eitt talið. Að auki fer fram

nám í ýmsu því sem verið er að sýsla með í skólanum á hefðbundnum

degi, svo sem mælingum, vinnu með form, réttritun og matreiðslu svo

eitthvað sé nefnt. Stutta samantekt um þetta verkefni og fleiri dæmi um

rauntengt nám er að finna á vef bókarinnar.