53
HLUTVERKALEIKIR OG RAUNTENGT NÁM :
SKAPANDI SKÓLI
Á miðstigi má til dæmis vinna í anda LARP með landnámið og landafundi,
kristnitöku og siðaskipti, klausturlíf og heimilishald, sjómennsku og landbúnað,
daglegt líf fyrr á tímum, stundum með ákveðna sögulega atburði sem verið er að
læra um í huga. Einnig mætti færa sig nær nútímanum með því að setja sig í spor
ferðafólks og heimamanna á framandi slóðum eða flóttafólks sem þarf að leita til
annarra landa vegna pólitískra ofsókna, þjóðernisátaka, trúarskoðana eða kyn-
hneigðar. Þá er skoðað í gegnum leikinn hvernig flóttamenn þurfa að laga sig að
nýjum siðum og menningu og fella sitt fyrra líf og reynslu að því sem bíður þeirra
í nýju landi. Forvinnan í slíkum spunaleik fælist fyrst og fremst í því að kynna sér
aðstæður flóttafólks í ákveðnum löndum eða heimshlutum og með hvaða hætti
það flýr frá heimahögum sínum. Auk þess mætti kynna sér hvað tekur við þegar
flóttafólk kemur til Íslands. Leikurinn sjálfur byggir svo á þeim upplýsingum
sem nemendur hafa aflað sér.
Með því að nota hlutverkaleiki á borð við þessa næst annars konar innsýn í
atburði og aðstæður. Nemendur lifa sig inn í leikinn og þurfa að beita allt annars
konar vinnubrögðum við námið en þegar byggt er á námsbókunum einum.
Fyrir nemendur á yngsta stigi er líklegt að hefðbundinn hlutverkaleikur án
mikilla umsvifa, búninga eða undirbúnings henti betur. Fyrir unga nemendur
er til dæmis upplagt að nýta slíka hlutverkaleiki í lífsleikni þegar unnið er með
einelti eða önnur samskiptamál. Kennari les klípusögu fyrir nemendur og skiptir
nemendum svo í hópa samkvæmt því sem sagan býður upp á. Síðan eiga nem-
endur að taka sér hlutverk þeirra sem í klípusögunni voru og leika atburðinn
sem um var að ræða en líka koma með hugsanlegar lausnir á vandanum. Ekki
er alltaf nauðsynlegt að hver hópur sýni sína útgáfu öllum hópnum en best er ef
hægt er að ná upp umræðum eftir hlutverkaleikinn um líðan persónanna og þá
úrvinnslu sem fram fór í leiknum.




