62
Hér enda skrifin eftir fimm eða tíu mínútur án þess að hafa nokkurn lokapunkt
eða niðurstöðu. Nemandinn leggur upp með að hann viti ekki svarið við spurn-
ingunni en svo kemur í ljós að hann veit meira en hann heldur. Þegar teknir eru
saman punktar frá öllum nemendum er líklegt að samanlögð veiti skrifin ágæta
yfirsýn yfir efnið. Á þeim grunni er hægt að mynda heildstæðan texta um við-
fangsefnið með bekknum öllum, með því að skipta nemendum í hópa sem hver
um sig skrifar um viðfangsefnið eða með því að láta hvern og einn vinna áfram
með sinn texta. Byggja má á þeim viðbótarupplýsingum sem þeir hafa nú fengið
og hugsanlega nýta námsbækur eða aðrar bjargir við skrifin.
Kraftskrif
Kraftskrif (e.
power writing
) líkjast flæðiskrifum að vissu leyti en hér eiga nem-
endur að keppa við sjálfa sig um orðafjölda á mínútu, fara yfir það sem þeir hafa
skrifað og endurskrifa. Oftast gefur kennari upp viðfangsefnið eða nemendur
fá að velja úr nokkrum viðfangsefnum til að skrifa um. Vel gefst að stunda þessi
skrif í tvo eða þrjá daga þar sem efnið fær þá tíma til að meltast aðeins í hugum
nemenda á milli þess sem þeir sinna verkefninu og út úr því kemur oft furðulega
mikil þekking sem nemendur búa yfir undir niðri en gerðu sér ekki ljósa. Af og
til er gott að nemendur séu látnir taka þessi kraftskrif með sér heim til að skila
daginn eftir sem heildstæðum og fullunnum texta með þeim upplýsingum sem
þeir hafa haft tíma til að ná sér í um efnið. Nemandi í unglingadeild sem í fyrstu
nær ef til vill ekki að skrifa nema 19 orð á mínútu um viðfangsefnið getur hugs-
anlega skrifað 34 orð á mínútu í annarri umferð – og jafnvel allt upp í 60–70 orð
á mínútu þegar þær eru orðnar fleiri og hann vel æfður.
Skilgreining hugtaka
Nemendur setja niður á blað hugmyndir sínar um hugtök sem þeir eiga að skil-
greina og tengjast efni kennslustundarinnar. Farið er yfir skilgreiningar og skýr-
ingar nemenda í nemendahópnum og á þeim skilningi sem fram kemur hjá nem-
endum byggir kennarinn kennsluna.




