54
Rauntengt nám
Við rauntengt nám (e.
authentic learning
) gefst nemendum kostur á að
afla sér þekkingar og færni sem nota mætti í daglegu lífi eða kringum-
stæðum af ýmsum toga. Þá er reynt að búa svo um hnútana að nemendur
öðlist reynslu sem hefur merkingarbæra þýðingu fyrir hvern og einn og
tengja má reynd og veruleika utan skóla. Ef nemendur standa uppi með
þekkingu og færni til að hagnýta á ýmsum sviðum að verkefninu loknu og
skilja betur heiminn í kringum sig er markmiðinu náð. Einfalt dæmi gæti
verið að gera ferðaáætlun um valið landsvæði innan landsteina eða utan,
leggja drög að nýsköpun með því að greina þörf og koma með útfærða
hugmynd að tæknilegri lausn eða setja sig í rannsóknarstellingar. Nem-
endur geta gert einfaldar kannanir, fylgst með umferð eða fuglalífi, rýnt í
sendibréf og dagbækur á vefnum, gert úttektir á blaðaefni og tekið viðtöl.
Stundum fást nemendur líka við raunveruleg verkefni sem hrinda á í
framkvæmd. Sem dæmi um hagnýtt verkefni mætti nefna skólaskemmt-
un á unglingastigi þar sem nemendur sjá um alla skipulagningu; aðdrætti,
fjárhagsumsýslu og framkvæmd. Hugsanlega stendur til að afla fjár í
ferðasjóð nemenda með því að setja upp leiksýningu í bæjarleikhúsinu eða
í skólanum, selja leikskrá og veitingar í hléi ásamt ýmsu handverki sem
unnið er af nemendum. Hlutverk kennara er utanumhald og aðstoð við
alla skipulagningu en nemendur sjálfir sjá um að ráða leikstjóra, ákveða
leikrit, gera fjárhagsáætlun sem felur í sér að að borga megi leikstjóranum
laun og koma jafnframt út í hagnaði. Að mörgu er að hyggja þegar verk-
efni sem þetta er sett á laggirnar og óhætt að segja að handtökin verða
fjölmörg og viðfangsefnin fjölbreytt. Hvernig sem til tekst með sjálfa
fjáröflunina hafa nemendur lært allt mögulegt sem þeir alla jafna læra
ekki í skólanum, svo sem hvar fá má upplýsingar um leikrit og leikstjóra,
til hverra má snúa sér við innkaup á gosdrykkjum eða hráefni í vöfflur,
hvernig afla á auglýsinga í leikskrá og fleira slíkt. Ef haldið er vel utan
um alla þessa hluti og öll vinna og allt skipulag skráð samviskusamlega,
og gætt að því að fara vel yfir lykilþætti að verkefni loknu má fullyrða að
nemendur dragi af svona vinnu ríkulegan lærdóm.
Gott dæmi um nám sem kalla má rauntengt er verkefni þar sem heill
skóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, leggur niður hefðbundið
skólastarf í vikutíma og dembir sér í vinnu sem nær út fyrir skólann og
inn í nærsamfélagið. Verkefnið nefnist Barnabær og grundvallast á hug-
myndum um lýðræði og samvinnu. Byggt er á sérstöku hagkerfi hönnuðu




