Previous Page  58 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 58 / 108 Next Page
Page Background

56

Útikennsla

Í handbók um skapandi skólastarf verður vart hjá því komist að fara nokkrum

orðum um útikennslu en eins og gefur að skilja getur hún farið fram á ýmsan

hátt, ekkert síður en önnur kennsla. Kennsluaðferðirnar eiga það helst sammerkt

að námið fer fram utandyra! Úrvinnsla fer oft fram innandyra og útikennsla get-

ur blandast og tengst ýmiss konar kennslu. Til útikennslu telst því allt nám sem

fram fer undir berum himni. Hún á helst að verða eðlilegur hluti af skólastarfi en

ekki eingöngu bundin við einstaka daga eða vettvangsferðir.

Útikennsla er talin hafa jákvæð áhrif á félagslegan þroska nemenda og um-

hverfisvitund. Þeir læra að umgangast hver annan í nýju umhverfi og mynda

sjálfir ný tengsl sín á milli. Þau fjölbreyttu verkefni sem unnið er að í útikennslu

geta vakið áhuga og hentað breiðum hópi nemenda, sem oft eru ólíkir að getu og

hæfileikum. Óvæntir hæfileikar geta komið í ljós og kennarar fá tækifæri til að

mynda ný og náin tengsl við nemendur sína.

Aðrir þættir sem mæla með útikennslu eru aukin hreyfing og betri heilsa sem

henni fylgja. Börn og unglingar hafa mikla þörf fyrir að hreyfa sig og fá í úti-

kennslunni þann sveigjanleika og rými sem til þarf. Námið fer fram utandyra og

nemendur anda sífellt að sér fersku lofti. Úthald þeirra eykst og útiveran hefur

jákvæð áhrif á samhæfingu, jafnvægi og hreyfigetu. Þó að þess sjái ekki stað í

námskrá þurfa börn á Íslandi helst að læra að ganga um votar mýrar og þýfða

móa, stórgrýti og skafla af snjó!

Stundum getur verið heppilegt að nýta nánasta umhverfi skólans til að vinna

með valda námsþætti á óvæntan hátt. Fara má út og tína lýsingarorð líkt og um

væri að ræða plöntur eða pöddur, koma inn með eitthvað hart, lítið, slímugt,

götótt, skemmt, grænt, fallegt og þar fram eftir götum. Á sama hátt mætti fjalla

um liti eða sækja yrkisefni í sögur og ljóð. Þetta gerir málfræðina og skáldskap-

inn áþreifanlegri og virkjar hugsun nemenda á annan hátt en þegar unnið er á

hefðbundinn hátt með orð og texta.

Förum út og finnum…

Nemendur eru sendir eða teknir út til að ná í eða tína hluti eftir ákveðnum

fyrirmælum. – Náðu í X marga hluti sem eru:

harðir mjúkir kringlóttir mynstraðir

þykkir þunnir þungir léttir