Previous Page  53 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 53 / 108 Next Page
Page Background

51

ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :

SKAPANDI SKÓLI

Vinna nemenda

•

Nemendur fá verkefnablað í hendur þar sem þeir setja fram rann-

sóknarspurningu, tilgátu og fylgja svo vísindalegri aðferð við athuganir

sínar eins og fjallað er um hér að framan.

•

Kennari er nemendum innan handar við gerð rannsóknarspurningar en

nemendur hafa frelsi til að kanna svo til hvað sem er.

•

Nemendur framkvæma tilraun sína, sem snýst um að kanna áhrif tveggja

(eða fleiri) breyta í tilraun. Það felur í sér að nemendur þurfa að fram-

kvæma tilraunina tvisvar, einu sinni með hvorri breytu.

Dæmi um rannsóknarspurningar með tveimur (eða fleiri) breytum

•

Er munur á vexti tveggja plantna sömu tegundar ef önnur er vökvuð með

orkudrykk en hin með vatni? Er munur á bollakökum sem bakaðar eru með

engu lyftidufti, lyftidufti samkvæmt uppskrift og helmingi meira lyftidufti

en uppskrift segir til um?

•

Á meðan á tilraun stendur þurfa nemendur að safna upplýsingum og skrá

niðurstöður.

•

Fyrir vísindavökuna gera nemendur veggspjald og undirbúa kynningu á

niðurstöðum tilrauna sinna.

Námsmat

Matið byggir á því hversu vel nemendur fylgja vísindalegri aðferð, hve vel þeir

kynna efnið sitt, veggspjaldi og frágangi eftir tilraun.

Um verkefnin hér að framan og leitarnám má lesa nánar á vef bókarinnar.