50
Dæmi um hálfstýrt leitarnám
Vísindavaka
Lokaafurð verkefnisins er
vísindavaka
þar sem
yngri nemendum og foreldrum er boðið á sýn-
ingu. Nemendur kynna þar verkefni sín, sýna
tilraunir og svara spurningum frá áhorfendum.
Verkefnið tekur 4x80 mínútur fram að sýningu.
Gert er ráð fyrir allt að 80 mínútum í sýninguna.
Markmið
Að nemendur
•
þjálfist í að beita vísindalegri aðferð,
•
læri hugtakið
breyta
og geti beitt því,
•
vinni saman í hóp,
•
þjálfist í að koma fram og kynna verk sín fyrir öðrum.
Skipulag og vinnubrögð
Kveikja
Sýnd er stutt mynd af neti þar sem hugtakið breyta er skýrt á greinargóðan hátt.
Á vef bókarinnar er hægt að finna dæmi um þess konar kveikjur.
•
Kennari gerir sýnitilraun með tveimur breytum.
•
Nemendum er skipt í hópa sem sjálfir ákveða hvað þeir vilja kanna.
Nemendur vinna tveir til þrír saman og eru hvattir til að sýna frumleika.




