49
ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :
SKAPANDI SKÓLI
Dæmi um stýrt leitarnám
Hagnýt efni
Markmið
Nemendur kynnist því hvernig efnafræðin getur komið að gagni í daglegu lífi
okkar.
Skipulag og vinnubrögð
Kveikja
Þankahríð um merkingu hugtaksins húsráð, könnun á forþekkingu nemenda.
Kennari og bekkur skoða saman dæmi um algeng
húsráð
, annars vegar af
efnafræðilegum toga og hins vegar húsráð byggð á öðrum forsendum. Benda
má á umfjöllun um húsráð gegn hiksta á
Vísindavefnum
en þar má bæði finna
ákveðnar efnafræðilegar tengingar og ráð byggð á öðrum þáttum, þótt um-
fjöllunin bjóði ekki endilega upp á tilraunir.
Vinna nemenda
•
Nemendur fá eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða húsráð byggjast
á efnafræði?
•
Nemendur koma með tilgátur, láta reyna á húsráðin sem verða fyrir
valinu og kanna efnafræðina að baki þeim.
•
Nemendur kynna niðurstöður sínar með hætti að eigin vali: skýrslu,
stuttmynd, myndasögu, lagi, kynningu eða öðru móti.
Námsmat
Matið byggist á framlagi í hópavinnu og því hversu vel nemendur fylgdu
vísindalegri aðferð.




