40
4.
Hver nemandi fær í sinn hlut einn þátt verkefnisins og á að afla sér
sérfræðiþekkingar um hann, leita svara við völdum spurningum. –
Hver var aðdragandi landflutninga Íslendinga vestur um haf? Hverjir
voru helstu brautryðjendur vesturferðanna? Hvernig gekk landnám
Íslendinga í Vesturheimi?
5.
Nemendur fá ákveðinn tíma til að kynna sér sinn efnisþátt og gera
má þá kröfu að þeir lesi sig tvisvar í gegnum efnið eða kynni sér það
vandlega með öðrum hætti. Ekki er nauðsynlegt að leggja efnið bein-
línis á minnið, aðeins að kynna sér það vel. Þó er sjálfsagt að þeir nem-
endur sem það kjósa fái tækifæri til að glósa hjá sér eða punkta niður
minnisatriði.
6.
Næst eru myndaðir sérstakir hópar sérfræðinga um hvern efnisþátt.
Nemendur sem fengu það verkefni í sinn hlut að kynna sér landnám
Íslendinga í Vesturheimi setjast saman, ræða um helstu atriðin sem
fram komu í lesefninu og leggja niður fyrir sér með sérfræðihópnum
hvernig þeir ætla að koma vitneskju sinni til skila til annarra í púsl-
hópnum sínum.
7.
Að umsömdum tíma liðnum í sérfræðihópunum fara nemendur aftur
í sinn púslhóp, hver með sína sérfræðiþekkingu í farteskinu.
8.
Nemendur púslhópsins kynna sitt sérfræðiefni hver á fætur öðrum og
helst í þeirri röð sem best fellur að efninu. Aðrir nemendur í hópnum
koma með spurningar um efnisþáttinn ef þurfa þykir og ætlast er til
að sérfræðingurinn svari þeim eftir bestu getu enda á hann að vera
orðinn býsna fróður um efnið.
9.
Kennarinn fer á milli hópa og fylgist með því hvernig gengur að koma
upplýsingum til skila með það fyrir augum að púslin komi öll saman
og gefi heildstæða mynd af viðfangsefninu og þeim upplýsingum sem
aflað hefur verið.
10.
Í lok tímans eða lengri lotu er gott að leggja fyrir litla könnun úr efn-
inu til að hnykkja á því að þessi vinna skipti máli og að nauðsynlegt sé
að allir skili sínu, fylgist með og veiti athygli því sem aðrir hafa fram
að færa, einblíni ekki á sinn þátt. Mikilvægt er að könnunin taki til
allra þátta sem hver hópur átti að afla upplýsinga um, í okkar tilviki
þáttanna fimm í vef um Vesturfara. Ekki er endilega nauðsynlegt að
leggja slíka könnun fyrir í hvert skipti sem púslaðferðinni er beitt en
gott að leggja hana fyrir öðru hverju og minna reglulega á mikilvægi
samvinnu í hópastarfi.




