43
ÞEMU, SÖGURAMMAR, SAMVINNA OG LEIT :
SKAPANDI SKÓLI
Mottuleiðin
Þessi samvinnunámsaðferð byggir jafnt á samræðum og ritun. Þegar þessi leið
er farin má telja nánast víst að allir nemendur taki virkan þátt og ef misbrestur
verður á því sér kennarinn það strax og getur gripið inn í vinnuna. Hér vinna
nemendur bæði einir og í hópum á stórt blað (A3 eða stærra), svonefnda
mottu
.
Á mitt blaðið er teiknaður hringur eða ferhyrningur og afganginum skipt í sem
jafnasta reiti fyrir alla í hópnum. Æskilegastir eru fjögurra manna hópar en
stundum þarf að sýna sveigjanleika í því sem öðru í skólastarfinu.
Nemendur nota tússliti til að skrifa með á blaðið og hver hefur sinn lit. Þannig er
auðvelt að sjá hver lagði hvað af mörkum.
1.
Kennari fær hverjum hópi ákveðið viðfangsefni eftir að hóparnir hafa verið
myndaðir og fengið eða útbúið sínar
mottur
.
2.
Nemendur fá tvær til þrjár mínútur til að hugsa um viðfangsefnið áður en
þeir hefjast handa við að skrifa. Á þeim tíma eiga þeir ekki að ræða saman.
3.
Þegar kennari gefur merki taka nemendur til við að skrá hugmyndir sínar,
vitneskju eða hugleiðingar um viðfangsefnið í sinn reit á mottunni og fá til
þess fimm til tíu mínútur. Þetta er gert í stikkorðum og punktum frekar en
samfelldum setningum.
4.
Hóparnir fá síðan ákveðinn tíma til að skoða saman allar hugmyndirnar
sem fram komu og velja úr þeim þær sem eru sameiginlegar, vekja mesta
forvitni hópsins eða þykja réttastar. Fyrirmæli kennarans varðandi þetta
byggjast á því hvernig og hvort vinna á með viðfangsefnið frekar. Þessi atriði
eru skrifuð á miðju mottunnar.
Niðurstöður eru stundum kynntar fyrir hinum mottuhópunum og fer það
eftir viðfangsefnum hverju sinni. Þá velur hver hópur einn fulltrúa fyrir sig til
að kynna mottuna munnlega, með því að ganga milli hópa og kynna niðurstöð-
urnar eða kynna þær fyrir öllum bekknum.
Aðferðin laðar fram tvö grundvallaratriði í uppeldi og menntun: sjálfstæða hugs-
un og samvinnu. Mottuleiðin er góð aðferð til að fá nemendur til að dýpka sig
í efni kennslustundar með því að hugsa einir og óstuddir um efni hennar eftir
öðrum brautum en námsbækurnar og kennarinn hafa lagt. Enn meiri dýpt næst
svo með því að ræða efnið við aðra í hópnum eftir að hver og einn hefur komið
fram með sínar hugsanir um viðfangsefnið. Aðferðin er nokkurs konar blanda af
hugflæði og hugarkorti og hægt er að nota mottuna sem grunn að hugarkorti um
viðfangsefnið, bæði til að rifja upp og taka saman efni kennslustundarinnar og
greina aðalatriðin frá athyglisverðum sjónarmiðum sem þar komu fram. Oft er
þessi aðferð líka notuð sem nokkurs konar kveikja að stærri verkefnum.
4 nemendur í hóp
3 nemendur í hóp
5 nemendur í hóp




