Previous Page  40 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 40 / 108 Next Page
Page Background

38

Afraksturinn

Oftast er unnið er með alla þættina myndrænt og afrakstur hengdur upp á

veggi. Beita má fjölbreyttum vinnubrögðum og nota tússliti, vatnsliti, málningu,

klippimyndir eða líkön úr pappamassa til að túlka persónur og sögusvið sem

verða til. Ritunarvinna er einnig hengd upp, og þá valin verkefni. Ýmsar leiðir

eru svo til að nýta nútímatækni við upplýsingaleit og miðlun ef út í það er farið.

Mikilvægt er að beita fjölbreyttum vinnubrögðum og lausnum þegar kemur að

þeirri enskukennslu sem fram fer innan rammans; vinna má með orðaþrautir og

krossgátur, útbúa samstæðuspil með orðum og orðskýringum og búa til glósu-

bók, svo dæmi séu nefnd.

Söguramma er hægt að nýta í öllum greinum og fyrir allan aldur nemenda.

Kennarar víða um land hafa síðustu áratugi búið til söguramma um fjölbreytt

viðfangsefni og marga þeirra má nálgast á netinu.

Samvinnunám

Samvinnunám (e.

cooperative learning

) má líta á sem regnhlífarhugtak yfir nám

og kennslu þar sem nemendur vinna á vandlega mótaðan og markvissan hátt að

sínu viðfangsefni saman í hópum.

20

Þessi vinnubrögð geta reynst heilladrjúg til

að spyrna gegn einelti í skólum, efla samkennd meðal nemenda, og auka virðingu

fyrir framlagi hvers og eins.

Undir samvinnunámheyra margar aðferðir eða útfærslur, svo sem samvinnunám

í fjölmenningarhópum (e.

cooperative learning in multicultural groups, CLIM

),

lærum saman (e.

learning together

) og hóprannsókn (e.

group investigation

).

Stundum er talað um samvirkni- eða samstarfsnám (e.

collaborative learning

)

nátengt samvinnunámi í flestum þáttum. Á Íslandi heyrist líka minnst á tölvu-

stutt samvinnunám (e.

computer supported collaborative learning

) þegar stuðst

er við stafræna tækni í skólastarfi. Hér verður aðeins fjallað um þrjár aðferðir

tengdar samvinnunámi, fyrst er

púslaðferðin21

(e.

jigsaw

), stundum einnig kölluð

sérfræðingaaðferðin

, tekin til umfjöllunar, en síðan aðferðir sem hér hafa fengið á

íslensku heitin

sjónarhorn22

(e.

four corners

) og

mottuleið23

(e.

place mat

). Þessar

þrjár aðferðir þykja góð dæmi um ólíkar leiðir í samvinnunámi.