Previous Page  48 / 108 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 48 / 108 Next Page
Page Background

46

Dæmi um opið leitarnám

Skipulag og vinnubrögð

Hópaskipan

Nemendur vinna þrír til fjórir saman.

Kveikja

Mikilvægt er að kveikjan veki raunverulegan áhuga á viðfangsefninu, að nemendur

skynji að viðfangsefnið er verðugt og kemur þeim við.

Hugmyndir að kveikju eða innlögn kennara:

Stuttur fyrirlestur um jafnrétti. Hvað er jafnrétti? Hvað er kynjamisrétti? Gott er að

styðjast við vef

Kynungabókar

.

Vekja má nemendur til umhugsunar með því að varpa fram spurningu á borð við hvað

væri öðruvísi í lífi þeirra ef þeir væru af öðru kyni.

Myndir og myndbrot af

YouTube

frá

The representation project

. Myndirnar fjalla á

áhugaverðan hátt um kynjamisrétti frá sjónarhorni stúlkna og sjónarhorni drengja.

Myndrænar upplýsingar um ýmsar staðreyndir sem snerta stöðu karla og kvenna á

Íslandi, svo sem um vinnumarkaðinn, menntun, ofbeldi og fleira. Þær má nálgast hjá

Hagstofu Íslands.

Einnig má benda á kennsluleiðbeiningar með bókinni

Ég, þú og við öll

og

Sögur og

staðreyndir um jafnrétt

i sem finna má á vef.

Jafnrétti kynjanna

Markmið

1. Að stuðla að vitundarvakningu

meðal nemenda og skapa opnar

og merkingabærar umræður um

jafnréttismál í nærumhverfi og

reynsluheimi nemenda byggðar

á vísindalegum vinnubrögðum.

2. Að nemendur

• viðhafi sjálfstæði í vinnubrögðum

• myndi opna spurningu tengda

jafnrétti kynjanna

• fylgi vísindalegri aðferð við

úrvinnslu spurningar sinnar

• kynni niðurstöður sínar.